Belgar minnast fórnarlamba hryðjuverkanna í Brussel Atli Ísleifsson skrifar 22. mars 2017 11:43 Filippus Belgíukonungur á minningarathöfn nærri Maelbeek-stöðinni í morgun. Vísir/afp
Belgar minnast þess í dag að ár er liðið frá hryðjuverkaárásunum í Brussel þar sem þrír hryðjuverkamenn gerðu sprengjuárásir á flugvelli og í neðanjarðarlestakerfi borgarinnar. „Þið hafið svarað hatrinu og þjáningunni með kærleik“, sagði Filippus Belgíukonungur í morgun. Fyrsta minningarstundin var haldin á Zaventem-flugvelli í morgun þar sem tveir menn sprengdu sjálfa sig í loft upp í innritunarsal flugvallarins að morgni 22. mars í fyrra. Þar létu sautján manns lífið. Nöfn fórnarlambanna voru lesin upp og var mínútu þögn klukkan 7:58 að staðartíma, á sama tíma og mennirnir sprengdu sjálfa sig í loft upp fyrir ári. Filippus konungur og Matthildur drottning voru bæði viðstödd minningarathöfnina. Minnisvarði til heiðurs fórnarlömbum árásarinnar var svo afhjúpaður í almenningsgarði nærri flugvellinum. Um níuleytið var svo haldin minningarathöfn á neðanjarðarlestarstöðinni Maelbeek í Brussel þar sem önnur árás var gerð síðar um morguninn í fyrra þar sem sextán manns létu lífið. Konungshjónin tóku einnig þátt í þeirri athöfn og ferðuðust þangað með neðanjarðarlest, líkt og fjöldi ráðherra og þingmanna. Aðstandendur fórnarlamba héldu þar ræðu og í stað mínútu þagnar var klappað í eina mínútu til minningar um fórnarlömb árásarinnar. Um hádegisbil hélt svo konungurinn ræðu á Schumann-hringtorginu í hjarta hverfisins þar sem allar helstu byggingar Evrópusambandsins er að finna, nærri Maelbeek-stöðinni. Fjöldi viðburða eru fyrirhugaðir í allan dag til að minnast fórnarlamba árásanna. Alls létu 35 manns lífið í hryðjuverkaárásunum í Brussel, þar af þrír árásarmenn. Um þrjú hundruð manns særðust. Fjöldi grunaðra hryðjuverkamanna var handtekinn eftir árásirnar, nokkrir þeirra einnig grunaðir um aðild að árásunum í París nokkrum mánuðum fyrr.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Slydda og snjókoma til fjalla Veður Fleiri fréttir Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Sjá meira