Ráða í framtíð Merkel úr sambandslandskosningum Kjartan Kjartansson skrifar 26. mars 2017 11:29 Kjósandi greiðir atkvæði í sambandslandskosningunum í Saarland. Vísir/EPA
Íbúar í þýska sambandslandinu Saarland ganga að kjörborðinu í dag. Grannt er fylgst með úrslitum kosninganna sem taldar eru gefa vísbendingar um hvernig Angelu Merkel kanslara mun reiða af í þingkosningunum í haust. Samsteypustjórn Kristilega demókrataflokks Merkel (CDU) og Sósíaldemókrata (SPD) stjórnar Saarland líkt og Þýskalandi sjálfu. Því er talið að kosningar til sambandslandsþingsins þar í dag geti varpað ljósi á stöðu Merkel sem sækist eftir fjórða kjörtímabili sínu sem kanslari. Skoðanakannanir benda til þess að CDU njóti mests fylgis flokkanna en að meirihluti SPD, vinstriflokksins Linke og Græningja gæti verið í spilunum. Öfgahægriflokkurinn Valkostur fyrir Þýskaland (Afd) gæti unnið þingsæti í kosningunum. AfD hefur meðal annars alið á andúð á innflytjendum og flóttamönnum og náð sætum á öðrum sambandslandsþingum. Á landsvísu sýna kannanir CDU og SPD jafnstóra en að kjósendur vilji heldur Martin Schulz, leiðtoga SPD, sem næsta kanslara samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Þingkosningar í Þýskalandi fara fram 24. september. Kosið verður til sambandslandsþings Schleswig-Holstein og Norðurrínar-Vestfalíu áður.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Erlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fleiri fréttir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Sjá meira