Borgaralegi flokkurinn Gerb sigraði í búlgörsku þingkosningunum Atli Ísleifsson skrifar 27. mars 2017 09:43 Hinn 57 ára Borisov hefur lengi verið mest áberandi maðurinn í búlgörskum stjórnmálum. Vísir/AFP
Mið-hægriflokkurinn Gerb vann sigur í búlgörsku þingkosningunum sem fram fóru í gær. Boyko Borisov, sem sagði af sér sem forsætisráðherra í janúar, segir að hann líti á niðurstöðu kosninganna sem áskorun til sín um að mynda nýja ríkisstjórn. Hinn 57 ára Borisov hefur lengi verið mest áberandi maðurinn í búlgörskum stjórnmálum og hefur þannig gegnt forsætisráðherraembættinu frá 2009 til 2013 og aftur frá 2014 til janúarmánaðar 2017. Á árunum 2005 til 2009 gegndi hann embætti borgarstjóra höfuðborgarinnar Sofiu, en á sínum yngri árum starfaði hann sem lífvörður kommúnistaleiðtogans Todor Zhivkov. Samkvæmt fyrstu tölum stefndi í að Gerb, sem jákvæður er í garð Evrópusambandsins, fengi 33 prósent atkvæða, en Sósíalistaflokkurinn 28 prósent. Kornelia Ninova, leiðtogi sósíalista, hefur þegar viðurkennt ósigur. Allt frá því að Rumen Radev, sem talinn er hliðhollur Rússum, var kjörinn forseti í nóvember síðastliðinn hefur mikil óvissa verið í búlgörskum stjórnmálum þar sem embættismenn hafa stýrt landinu síðustu mánuði eftir að Borisov sagði af sér í janúar. Þingkosningarnar voru þær þriðju í landinu á fjórum árum.
Mest lesið Rak í rogastans þegar hann las viðtalið við Bubba Innlent Aldrei séð annan eins hraðakstur eftir þrjátíu ár í lögreglunni Innlent Árbæingar áhyggjufullir vegna umdeildra framkvæmda Innlent Metfjöldi á biðlista og mögulega þarf að vísa frá Innlent Nítján ára ferðamaður fannst látinn Erlent Einstök litasamsetning á Prinsi Greifa Innlent Friðarviðræður hafnar í Katar og Netanyahu heldur til Washington Erlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Bíll í ljósum logum á Skaganum Innlent Boltaleikir bannaðir á skólalóðinni eftir klukkan tíu Innlent Fleiri fréttir Friðarviðræður hafnar í Katar og Netanyahu heldur til Washington Banamaður ráðherra fær að stíga fæti út fyrir fangelsið Um sjötíu látnir í flóðunum og stúlknanna enn leitað Hegseth hafi logið því að gengið sé á vopnabirgðir Bandaríkjanna Nítján ára ferðamaður fannst látinn Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Tuttugu og fimm stúlkna saknað úr sumarbúðum vegna flóða Minnst þrettán látnir og tuttugu barna saknað eftir flóð í Texas Rússar sagðir nota efnavopn í Úkraínu í auknum mæli Tveir ferðamenn létust í fílaárás í Sambíu Stunguárás í Tampere hvorki talin hryðjuverk né rasísk árás Sænskur glæpaforingi tekinn fastur í Tyrklandi Leiðtogar Hamas sagðir þokast nær því að samþykkja vopnahlé Vilja nýta formennskuna til að láta sverfa til stáls gegn Ungverjum Tugir slasaðir eftir sprengingu á bensínstöð í Róm Hæstiréttur opnar á brottflutning til þriðja ríkis Engin árangur af símtalinu og fjórtán látnir eftir árás á Kænugarð Stóra og fallega frumvarpið verður að lögum Voru á há-áhættu lista BBC fyrir Glastonbury Fjöldi flugferða felldur niður vegna verkfalls franskra flugumferðarstjóra Danskur covid-samsærissinni bendlaður við rússneskan upplýsingahernað Trúarhópar mótmæla Zúmba-kennslu á Indlandi Stjórnlaus gróðureldur ógnar heimilum á Krít „Stóra og fallega frumvarpið“ enn í limbó á þinginu Combs áfram í gæsluvarðhaldi Sautján ára drengur drukknaði á Hróarskeldu Játar að hafa myrt fjórmenningana í Idaho Jimmy Swaggart allur Sjá meira