Þrjú ár fyrir kynferðisbrot gegn stjúpdóttur: Móðirin reyndi að hafa áhrif á framburð stúlkunnar Benedikt Bóas skrifar 17. mars 2017 07:00 Maðurinn er dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar fyrir brotin gegn stjúpdóttur sinni. vísir/gva
Móðir stúlku lagði hart að dóttur sinni að draga frásögn sína til baka um kynferðislega misnotkun af hálfu stjúpföður síns. Stúlkan breytti framburði sínum við aðalmeðferðina en í niðurstöðu dómsins segir að fyrri skýrslur stúlkunnar þyki bæði trúverðuggar og þeim beri saman. Ekki sé vitað hvers vegna stúlkan breytti vitnisburði sínum en sá vitnisburður verði ekki lagður til grundvallar niðurstöðunni. Stjúpfaðir stúlkunnar var því dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir misnotkun en brotin áttu sér stað þegar stúlkan var þrettán og fjórtán ára gömul. Maðurinn játaði tvisvar í yfirheyrslum hjá lögreglu og bar fyrir sig áhyggjur af því að stúlkan væri byrjuð að stunda kynlíf. Hann hefði varla sofið og viljað athuga hvort meyjarhaftið væri enn órofið. Framburður hans fyrir dómi þótti bæði ruglingslegur og ekki eiga sér neina stoð í raunveruleikanum. Ráðgjafi barnaverndar í heimabæ stúlkunnar bar vitni fyrir dómi og greindi frá því að stúlkan hefði sagt sér að móðir hennar legði hart að henni að draga frásögnina til baka. Á það hlustaði dómurinn ekki og dæmdi manninn til að greiða stjúpdóttur sinni tvær milljónir króna í bætur.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Þessir Íslendingar kvöddu á árinu 2025 Innlent 70 prósent landsmanna hlynnt banni Innlent Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins: „Þorgerður er afar indæl“ Innlent Sjómenn mótmæla breytingum á samsköttun hjóna Innlent Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Innlent Neita að ræða við Úkraínumenn vegna meintrar árásar á heimili Pútíns Erlent Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Erlent Bandaríkin leggja til tvo milljarða dala með skilyrðum Erlent Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Erlent Selenskí sver af sér drónaárás á heimili Pútíns Erlent Fleiri fréttir Samfélagsmiðlabann án fræðslu stoðar lítið Samfélagsmiðlabann nýtur mikils stuðnings og flugeldasalan í fullum gangi Hægt að gefa hundum róandi og lyf til að gleyma um áramót Sjómenn mótmæla breytingum á samsköttun hjóna 70 prósent landsmanna hlynnt banni Þessir Íslendingar kvöddu á árinu 2025 Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins: „Þorgerður er afar indæl“ Tvö handtekin fyrir þjófnað og þrír fyrir sölu og dreifingu Stoltastur af veiðigjaldinu og telur aðrar skattabreytingar hafa lítil áhrif á heimilin Föðurnum enn haldið sofandi í öndunarvél Fylgi stjórnarflokkanna dalar Föðurnum í Suður-Afríku enn haldið sofandi Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Fannst látinn utandyra í Borgarnesi Halldór Blöndal borinn til grafar Fimm með vanlíðan komast í Skjólshús í tvær vikur Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Kominn tími á gos og Veðurstofan öllu viðbúin Sýknuð af ólöglegum innflutningi lyfja vegna rangra upplýsinga Lyfjastofnunar Þriggja hatta Inga segir engin ráðherraskipti í pípunum Desember að komast á lista yfir þá allra hlýjustu Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Samið um Skjólshús og gos gæti komið á hverri stundu Hér verða áramótabrennur á gamlársdag 2025 Björn Ingi leiðir ekki Miðflokksmenn í borginni Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Óvenju mikið að gera hjá slökkviliðinu Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Sjá meira