Stjórnarformaður Liverpool getur ekki lofað því að Coutinho fari ekki í janúar Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. desember 2017 13:30 Philippe Coutinho skoraði þrennu á móti Spartak. Vísir/EPA
Liverpool getur ekki lofað stuðningsmönnum sínum því að Phillipe Coutinho verði enn þá leikmaður liðsins eftir að janúarglugginn verður opnaður í byrjun árs, samkvæmt stjórnarformanni félagsins, Peter Moore. Coutinho var eftirsóttur af Barcelona í sumar og vildi ólmur komast til katalónska risans en Liverpool hafnaði hverju tilboðinu á fætur öðru. Brassinn virðist vera búinn að jafna sig og rúmlega það en hann skoraði þrennu í 7-0 sigri á Spartak Moskvu í vikunni þegar að Liverpool vann sinn riðil á leiðinni í 16 liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Moore getur ekki staðfest að Coutinho verði áfram hjá Liverpool þegar að nýtt ár rennur í garð en hann ræddi málefni Brasilíumannsins í viðtali við Sky Sports. „Við gáfum út eina yfirlýsingu á síðasta ári. Í henni kom fram að leikmaðurinn væri ekki til sölu en þá yfirlýsingu gáfu eigendurnir út,“ segir Moore. „Ég get bætt við það, að nú les maður hverja söguna á fætur annarri frá Spáni þar sem sagt er að Barcelona, eða eitthvað annað lið, ætli sér að kaupa Coutinho. Það sem ég sá, aftur á móti, í vikunni var leikmaður sem var ánægður að skora þrennu fyrir sitt lið fyrir framan 54.000 manns.“ „Hópurinn sem við erum með núna er sá sami og við förum inn í janúar með, en ég á ekki kristalskúlu þannig ég get ekki séð inn í framtíðina. Ég veit ekki hvað gerist í janúar,“ segir Peter Moore.
Enski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Körfubolti Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Fleiri fréttir Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Sjá meira