Formaður fjárlaganefndar las fyrst um gjöf fjármálaráðherra í fjölmiðlum Aðalheiður Ámundadóttir skrifar 2. september 2017 06:00 Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra gaf Bláskógabyggð íþróttamannvirki við Laugarvatn sem voru í eigu ríkisins. vísir/páll magnús skúlason „
Um þennan gjörning veit ég ekkert,“ segir Haraldur Benediktsson, formaður fjárlaganefndar, um afhendingu fjármálaráðherra á íþróttamannvirkjum við Laugarvatn til sveitarfélagsins Bláskógabyggðar, sem sagt var frá í fréttum Stöðvar 2 í gær. „Nei, ég skrollaði bara yfir fréttirnar í morgun og sá að hann var að undirrita einhvern gjörning við sveitarfélagið þarna,“ segir Haraldur.Haraldur Benediktsson, formaður fjárlaganefndar.vísir/anton brinkSamkvæmt 40. gr. stjórnarskrárinnar verður eignum ríkisins ekki ráðstafað nema með lagaheimild. Aðspurður segist Haraldur ekki muna hvort heimild til ráðstöfunar þessara eigna hafi verið veitt í fjárlögum, en segir ekki óþekkt að slík heimild sé veitt eftir á og þá í fjáraukalögum. „Það er langur vegur frá því að það sé hefðbundið að sækja svona heimild í fjáraukalögum, ég er ekki einu sinni viss um að það standist,“ segir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður og fulltrúi VG í fjárlaganefnd Alþingis. Í 5. gr. fjárlaga fyrir 2017 er fjármála- og efnahagsráðherra veitt heimild til að „selja eignarhlut ríkisins í fasteignum framhalds- og sérskóla sem ekki eru lengur notaðar sem slíkar, og þykja ekki henta til skólahalds, og verja andvirðinu til endurbóta á skólahúsnæði í eigu ríkisins“. „Þetta er með fyrirvara um samþykki Alþingis og verður væntanlega borið upp í fjáraukalögum í haust,“ segir Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra. Ráðherra segir ekki óalgengt að samþykkis Alþingis sé aflað eftir á í svona tilvikum. „Reglan er að svona heimildir eru settar inn með fjárlögum og eru þá með í fjárlögum oft árum saman,“ segir Benedikt og bætir við: „Bara svona heimild sem einhverjum dettur í hug að setja inn, ef ske kynni.“ Ráðherra segir að þó málið hafi ekki verið rætt formlega við fjárlaganefnd hafi nokkrir nefndarmenn vitað af málinu, enda hafi það tvívegis verið kynnt í ríkisstjórn. Um verðmat eignanna segir ráðherra erfitt að segja. Þá sé viðhaldsþörf orðin mikil á þessum húsum og samningurinn því í raun mjög hagstæður fyrir báða aðila.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira