Tók slasaðan lunda í varanlegt fóstur Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 2. ágúst 2017 19:30
Lundinn Mundi, sem var í vor bjargað við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar, lifir nú góðu lífi í Mosfellsbæ hjá Ásrúnu Ester Magnúsdóttur sem tók hann í varanlegt fóstur. „Ég ákvað að taka hann heim og ætlaði nú að hlúa aðeins að honum en planið var alltaf að sleppa honum aftur. Svo kemur í ljós að hann sé væntanlega blindur, eða allavega sjái mjög illa. Ég hef rætt við marga fuglafræðinga og dýralækna og þeir eru allir sammála um það að sjónskertur fugl muni hafa fáa kosti í náttúrunni," segir Ásrún. Úr varð að hún og kærasti hennar tóku Munda í varanlegt fóstur og það er ekki annað að sjá en að hann lifi góðu lífi. Búrið er sérsmíðað, hann er með einkasundlaug og fær loðnu í gogginn nokkrum sinnum á dag. „Vinum og vandamönnum fannst ekkert sérstaklega skrítið þegar þau fréttu að ég væri komin með enn eitt dýrið inn á heimilið. En þett er nú svona með sérstakari páfagaukum sem fólk sér,“ segir Ásrún kímin. Hún stofnaði Facebooksíðu fyrir nokkrum mánuðum til að leyfa fólki að fylgjast með ævintýrum Munda. Hann á nú aðdáendur um allan heim. „Þetta er ótrúleg athygli. Ég held það séu um tvö þúsund manns sem eru aðdáendur á Facebooksíðunni hans. Þau eru að kommenta og senda mér skilaboð og allir að hylla mig. Þessir týpísku Bandaríkjamenn eru að biðja fyrir okkur og lofa okkur alveg í hástert,“ segir hún og hlær.En í vetur, hvað þá?„Þá eigum við þennan fína bílskúr sem við erum að hugsa um að rusla aðeins út úr og koma búrinu fyrir þar. Eina sem má kannski koma inn á er að mig vantar loðnu. Ef einhver veit hvar ég get fengið loðnu fyrir hann þá yrðum við afskaplega kát með það.“
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Innlent Fleiri fréttir Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Sjá meira