Liðsmenn ETA afhenda vopn sín á morgun Atli Ísleifsson skrifar 7. apríl 2017 11:20 Sérstök athöfn er fyrirhuguð í frönsku borginni Bayonne sunnarlega á vesturströnd Frakklands á morgun. Vísir/AFP
Liðsmenn basknesku aðskilnaðarhreyfinginnar ETA munu afhenda vopn sín frönskum yfirvöldum í borginni Bayonne á morgun. Í bréfi sem ETA dreifði í gegnum breska ríkisútvarpið BBC kemur fram að hreyfingin muni að fullu afvopnast á morgun, 8. apríl. Þó kemur fram í stuttu bréfinu að „óvinir friðarins“ gæru enn stöðvað ferlið. ETA hefur barist fyrir sjálfstæði Baskalands um áratuga skeið, en lýsti yfir einhliða vopnahléi árið 2011. Yfirvöld á Spáni og Frakklandi höfðu þá lengi barist gegn og þrýst á samtökin að leggja niður vopn. Hreyfingin hefur staðið fyrir mannránum og sprengjuárásum í nærri hálfa öld og borið ábyrgð á dauða um átta hundruð manna – sér í lagi spænskum lögreglumönnum, hermönnum og stjórnmálamönnum. Spænsk yfirvöld hafa margoft bannað stjórnmálahreyfingar á vegum liðsmanna ETA, en þær hafa alltaf blossað upp á ný undir nýju nafni. Í sumum sveitarfélögum í spænskum hluta Baskalands hefur slíkum hreyfingum tekist að ná allt að fjórðungs fylgi. Í bréfinu er hvergi minnst á þá staðreynd að liðsmenn ETA hafi myrt á níunda hundrað manna í áratugalangri baráttu sinni. Spænsk stjórnvöld hafa ekki tjáð sig um bréf ETA og fyrirætlanir hreyfingarinnar.
Tengdar fréttir Le Monde: Liðsmenn ETA reiðubúnir að leggja niður vopn Erlendir fjölmiðlar segja að baskneska aðskilnaðarhreyfingin ETA muni leggja niður vopn þann 8. apríl. 17. mars 2017 14:18 Mest lesið Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Innlent Barist á hafi úti Erlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Fleiri fréttir Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Sjá meira
Le Monde: Liðsmenn ETA reiðubúnir að leggja niður vopn Erlendir fjölmiðlar segja að baskneska aðskilnaðarhreyfingin ETA muni leggja niður vopn þann 8. apríl. 17. mars 2017 14:18