Dramatískar lokamínútur tryggðu Bristol sigur á United Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 20. desember 2017 22:00 Hörður Björgvin í baráttunni við Marcus Rashford vísir/getty Bristol City fer í undanúrslit enska deildarbikarsins eftir að hafa unnið meistara síðasta árs, Manchester United, í 8-liða úrslitunum. Chelsea fer með þeim í undanúrslitin eftir sigur á Bournemouth. Sigrarnir verða varla dramatískari en á Ashton Gate í kvöld, en Korey Smith tryggði Bristol City sigurinn þegar uppbótartíminn var við það að renna út. Áður hafði Joe Bryan komið heimamönnum yfir á 51. mínútu í leik sem var mjög opinn og fjörugur allt frá fyrsta flauti. Zlatan Ibrahimovic jafnaði fyrir United úr aukaspyrnu á 58. mínútu, fyrsta mark hans síðan hann snéri aftur til United. Hörður Björgvin Magnússon var í byrjunarliði Bristol City en var tekinn af velli á 69. mínútu. Hörður átti marga fína spretti í leiknum og ógnaði Sergio Romero í marki United nokkrum sinnum. Á Stamford Bridge byrjaði Chelsea leikinn mun betur og komst yfir með marki frá Willian snemma í fyrri hálfleik. Heimamenn voru sterkari aðilinn út hálfleikinn en náðu þó ekki að skora fleiri mörk. Gestirnir í Bournemouth voru miklu sprækari eftir leikhléið, og Chelsea komst ekki almennilega inn í leikinn aftur fyrr en Eden Hazard og Alvaro Morata voru settir inn á. Bournemouth náði þó ekki að gera sér mat úr færum sínum og allt leit út fyrir sigur Chelsea þegar Dan Gosling skoraði á síðustu mínútu venjulegs leiktíma og virtist tryggja Bournemouth framlengingu. Varamenn Chelsea voru þó ekki á því og Morata tryggði Chelsea sæti í undanúrslitunum með marki tæpri mínútu eftir mark Bournemouth. Í undanúrslitunum verða því Bristol City, Chelsea, Arsenal og Manchester City.
Bristol City fer í undanúrslit enska deildarbikarsins eftir að hafa unnið meistara síðasta árs, Manchester United, í 8-liða úrslitunum. Chelsea fer með þeim í undanúrslitin eftir sigur á Bournemouth. Sigrarnir verða varla dramatískari en á Ashton Gate í kvöld, en Korey Smith tryggði Bristol City sigurinn þegar uppbótartíminn var við það að renna út. Áður hafði Joe Bryan komið heimamönnum yfir á 51. mínútu í leik sem var mjög opinn og fjörugur allt frá fyrsta flauti. Zlatan Ibrahimovic jafnaði fyrir United úr aukaspyrnu á 58. mínútu, fyrsta mark hans síðan hann snéri aftur til United. Hörður Björgvin Magnússon var í byrjunarliði Bristol City en var tekinn af velli á 69. mínútu. Hörður átti marga fína spretti í leiknum og ógnaði Sergio Romero í marki United nokkrum sinnum. Á Stamford Bridge byrjaði Chelsea leikinn mun betur og komst yfir með marki frá Willian snemma í fyrri hálfleik. Heimamenn voru sterkari aðilinn út hálfleikinn en náðu þó ekki að skora fleiri mörk. Gestirnir í Bournemouth voru miklu sprækari eftir leikhléið, og Chelsea komst ekki almennilega inn í leikinn aftur fyrr en Eden Hazard og Alvaro Morata voru settir inn á. Bournemouth náði þó ekki að gera sér mat úr færum sínum og allt leit út fyrir sigur Chelsea þegar Dan Gosling skoraði á síðustu mínútu venjulegs leiktíma og virtist tryggja Bournemouth framlengingu. Varamenn Chelsea voru þó ekki á því og Morata tryggði Chelsea sæti í undanúrslitunum með marki tæpri mínútu eftir mark Bournemouth. Í undanúrslitunum verða því Bristol City, Chelsea, Arsenal og Manchester City.
Enski boltinn Mest lesið Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Handbolti Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Enski boltinn „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Íslenski boltinn Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Formúla 1 „Búinn að missa töluna af leikmönnum sem FH-ingar eru búnir að fá“ Sport Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Enski boltinn „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Enski boltinn Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Körfubolti Salah skoraði fyrstu mörkin fyrir Trabzonspor Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Sjá meira