Obama gagnrýndur fyrir 42 milljóna króna ræðu Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 25. apríl 2017 23:16 Barack Obama í háskólanum í Chicago í gær. Vísir/Getty
Barack Obama fyrrverandi Bandaríkjaforseti sætir nú gagnrýni fyrir að þiggja 400 þúsund bandaríkjadala, eða sem nemur 42,6 milljónum íslenskra króna, fyrir að halda fyrirlestur fyrir banka á Wall Street. Fyrirlesturinn sem um ræðir er hluti af heilbrigðisráðstefnu í september sem skipulögð er af bankanum Cantor Fitzgerald. Þóknunin sem Obama fær fyrir fyrirlesturinn er nær tvöfalt hærri en þeir 225 þúsund sem Hillary Clinton fékk fyrir þrjár ræður hjá Goldman Sachs fjárfestingabankanum árið 2015. Hún var harðlega gagnrýnd fyrir ræðurnar í kosningabaráttunni fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í fyrra. Margir gagnrýna ákvörðun Obama um að koma fram fyrir Cantor Fitzgerald og segja að það skjóti skökku við það sem hann hefur áður sagt um áhrif fjármálaheimsins á stjórnmál í Bandaríkjunum. „Ég fór ekki í framboð til að hjálpa einhverjum feitum köttum á Wall Street,“ sagði hann til að mynda í viðtali við CBS árið 2009. Obama lét af embætti forseta Bandaríkjanna þann 22. janúar síðastliðinn. Hann hefur látið lítið fyrir sér fara síðan þá en kom í gær fyrst fram opinberlega frá starfslokum. Hann ræddi við unga leiðtoga í háskólanum í Chicago um mikilvægi stjórnmálaþátttöku.
Tengdar fréttir Obama snýr aftur: „Jæja hvað hefur verið í gangi á meðan ég var í burtu?“ Barack Obama sneri í dag aftur í sviðsljósið eftir að hann lét af embætti forseta Bandaríkjanna í lok janúar. 24. apríl 2017 21:39 Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Sjá meira
Obama snýr aftur: „Jæja hvað hefur verið í gangi á meðan ég var í burtu?“ Barack Obama sneri í dag aftur í sviðsljósið eftir að hann lét af embætti forseta Bandaríkjanna í lok janúar. 24. apríl 2017 21:39