Bæjarstjórinn í Garði gagnrýnir seinagang umhverfisráðherra Kristinn Ingi Jónsson skrifar 21. ágúst 2017 06:00 Svona sjá stjórnendur Kaupfélags Suðurnesja Rósasel fyrir sér. Mynd/KS
Bæjaryfirvöld í Garði eru afar ósátt við þær tafir sem hafa orðið innan stjórnsýslunnar við að staðfesta nýtt aðalskipulag Keflavíkurflugvallar. Skipulagið hefur ekki verið staðfest þrátt fyrir að allir lögbundnir afgreiðslufrestir séu liðnir. Bæjarstjórinn segir dapurlegt að stjórnsýslan skuli ekki virka sem skyldi. Framkvæmdir Kaupfélags Suðurnesja við fyrsta áfanga verslunarkjarnans Rósasels skammt frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar áttu að hefjast fyrir rúmu ári. Þær hafa hins vegar tafist verulega og er ekki gert ráð fyrir að uppbyggingin fari af stað fyrr en í fyrsta lagi í haust. Ástæðan er sú að ekki hefur tekist að létta á kvöðum í skipulagi Keflavíkurflugvallar þannig að bæjaryfirvöld í Garði geti breytt aðalskipulaginu á svæðinu við Rósasel. Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Garði, segir að tafirnar komi sveitarfélaginu, flugvallaryfirvöldum og þeim fjárfestum sem hafi hug á að byggja upp atvinnustarfsemi á svæðinu mjög illa. „Við getum ekkert gert í okkar skipulagsmálum fyrr en búið er að staðfesta nýtt aðalskipulag fyrir Keflavíkurflugvöll. Þetta hefur tafist von úr viti. Fjárfestar bíða eftir að geta hafið uppbyggingu þarna. Það eru miklir hagsmunir undir fyrir marga,“ segir hann.Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Garði.Magnús útskýrir að sveitarfélagið hafi nú beðið mánuðum saman eftir því að nýtt aðalskipulag flugvallarins verði staðfest, en það er forsenda þess að hægt verði að gera nauðsynlegar breytingar á aðalskipulagi Garðs á svæðinu við Rósaselstorg. „Þar stendur hnífurinn í kúnni. Skipulagsstofnun tók sér tíma langt umfram lögbundinn afgreiðslufrest til að staðfesta nýtt aðalskipulag flugvallarins, en vísaði málinu loks til umhverfisráðherra í byrjun ársins. Ráðherra átti samkvæmt skipulagsreglugerð að afgreiða málið í mars. Nú er langt liðið á ágúst og ekkert hefur gerst. Nýjustu fregnir sem við fengum í lok júní voru að ráðuneytið myndi líklega ekki afgreiða málið fyrr en um mánaðamót ágúst og september. Nú er að bíða og sjá hvort það stenst. Við erum mjög ósátt við þessar tafir og teljum dapurlegt að stjórnsýslan skuli ekki virka sem skyldi.“ Áform Kaupfélags Suðurnesja um að byggja Rósasel, á um tuttugu þúsund fermetra lóð við síðasta hringtorgið áður en komið er að flugstöðinni, voru kynnt í byrjun árs 2016. Framkvæmdum við fyrsta áfanga átti þá að ljúka á þessu ári og í kjölfarið hófst leit að fjárfestum að verkefninu. Í ágúst í fyrra var skrifað undir viljayfirlýsingar við fjögur félög um rekstur í verslunarkjarnanum. Nettó, sem er í eigu Samkaupa, dótturfélags Kaupfélags Suðurnesja, myndi opna matvöruverslun, Olís reka þar bensínstöð og Subway, Pizza Hut, KFC, Taco Bell og Grill 66 veitingastaði. Nú er búist við að framkvæmdir hefjist í haust. Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir 500 fermetra bensínstöð, verslun Nettó upp á þúsund fermetra og eitt þúsund fermetra veitinga- og þjónustuhluta. Áætlað er að framkvæmdir taki um tólf til sextán mánuði.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Erlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Sjálfkjörið á Vopnafirði Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Fleiri fréttir Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Sjá meira