Enginn vill fokdýra einbýlishúsið á Spáni Benedikt Bóas skrifar 15. ágúst 2017 15:30 Húsið er í Altea, við Alicante á Spáni. Mynd/Spánarheimili
Dýrasta hús sem auglýst er til sölu á fasteignavefjum landsins er risastór villa í Altea við Alicante á Spáni. Húsinu er lýst sem draumahúsi, með ótrúlegu útsýni yfir bátahöfnina og hönnunin er sögð þannig að erfitt sé að lýsa henni með orðum. Húsið er á fjórum hæðum með lyftu og kostar um 400 milljónir króna. Á þá eftir að greiða um 12 prósent í opinberan kostnað sem gera um 50 milljónir. Heildarkostnaður er því nálægt hálfum milljarði. Bjarni Sigurðsson, framkvæmdastjóri Spánarheimila, sem sér um sölu hússins segir að síminn hringi mikið hjá sér og sínu fólki en lítið sé spurt um þetta tiltekna hús. „Íslendingar eru ekki að fara í svona dýrt hús. Það hefur selst mjög mikið á þessu ári frá því höftin voru afnumin. Þá opnuðust flóðgáttir og flestir eru að kaupa eignir á bilinu 15-30 milljónir. Meðaltalið er í kringum 23 milljónir ef ég ætti að setja einhverja tölu á það en það eru líka stórar og fínar eignir,“ segir Bjarni sem staddur er úti á Spáni að selja eignir. Sjö starfa hjá fyrirtækinu Spánarheimili en það einbeitir sér að selja hús á Costa Blanca svæðinu sem er á suðaustur Spáni. Svæðið er stærsta orlofshúsabyggð í Evrópu og er flogið beint þangað til og frá Íslandi. „Á Costa Blanca svæðinu er mjög virkur markaður. Hann fór aftur af stað fyrir um þremur árum en síðustu misserin hefur hann verið mjög virkur. Þetta eru ný hús og gæðin mjög mikil. Verðið er ekki hátt og það er tíu ára ábyrgð í þokkabót. Það er lítill munur á nýju húsi og eldra. Það kemur fólki alltaf jafn mikið á óvart hvað það er auðvelt að kaupa hús hér á Spáni. Það er samkeppni um lán og bankarnir eru að bjóða góð kjör.“ Hann segir að það sé öðruvísi kauphegðun nú en fyrir tíu árum. „Vextirnir voru lægri þá en fyrir tíu árum tók fólk lán upp í topp þó það hefði efni á öðru. Þá voru lánin hagstæð. Núna er minna um að fólk sé að taka fullt lán. Það er ekki að veðsetja sig í botn.“ Hann segir að þrjú flugfélög fljúgi á svæðið og það sé auðvelt að komast til og frá svæðinu. „Við erum mest að þjónusta Íslendinga þó það komi fyrir að við hjálpum erlendum aðilum. Við vorum að bæta við okkur sjöunda starfsmanninum og það er nóg að gera hjá öllum.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Fleiri fréttir Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Sjá meira