Í þakkarræðu sinni talaði Swift til ungra kvenna og lét rapparann Kanye West heyra það. Söngkonan nefndi reyndar engin nöfn en fáum duldist að Swift var að svara rapparanum, sem í nýju lagi sínu, Famous, segist hafa gert Taylor Swift fræga:
“I made that bitch famous.”
Swift benti á að hún væri fyrsta konan til að vinna verðlaunin fyrir bestu plötuna tvisvar og sagði svo:
„Mig langar að segja við allar ungu konurnar þarna úti: á vegi ykkar munu verða fullt af fólki sem er tilbúið til að gera lítið úr árangri ykkar eða eigna sér það sem þið hafið gert eða frægð ykkar. En ef þið einbeitið ykkur bara að því sem þið eruð að gera og látið ekki þetta fólk stöðva ykkar þá munuð þið einn daginn ná þangað sem þið stefnið. Þið munuð líta í kringum ykkar og sjá að þið voruð þið sjálfar og fólkið sem elskar ykkur sem kom ykkur þangað og það verður besta tilfinning í heimi.“
Það má síðan segja að Kendrick Lamar hafi átt rappflokkinn en hann vann meðal Grammy fyrir bestu rappplötuna og besta rapplagið.