Sky Sports: Mourinho á leið til Manchester Anton Ingi Leifsson skrifar 21. febrúar 2016 12:45 Er Mourinho hissa á þessu? vísir/getty
Jose Mourinho, fyrrverandi stjóri Chelsea og fleiri stórliða, mun taka við af Louis van Gaal sem stjóri Manchester United ef marka má frétt Sky Sports í dag. Þetta hefur Sky eftir ráðgjafa Inter Milan. Mourinho hefur undanfarna daga verið á Ítalíu þar sem hann hefur heimsótt Moratti fjölskylduna, sem stýrir Inter Milan, en Mourinho starfaði með henni þegar hann var þjálfari Inter á sínum tíma. Þá fóru sögusagnir af stað um að Mourinho væri á leið að taka við Inter, en Bedy Moratti, systir fyrrum forseta Inter, Massimo Moratti, sagði: „Við söknum hans persónu, en hann er ánægður - hann er að fara til Manchester,” sagði Bedy í samtali við fjölmiðla. United er í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar, en liðið tapaði á vandræðalegan hátt gegn Midtjylland í Evrópudeildinni í vikunni sem gerir stjórasæti Van Gaal enn heitara fyrir vikið. Alveg frá upphafi ársins hefur verið orðrómur um að sá portúgalski, Mourinho, sé á leið til United, en Guillem Balague, sparkspekingur Sky Sports, segir að það sé enginn samningur í höfn milli United og Mourinho. Mourinho sá Inter spila við Sampdoria í gær og var svo spurður hvort hann væri að taka við Inter á næstunni, en hann gaf lítið fyrir þær fréttir. „Ég hef ekki komið til Milan lengi, fyrir utan Meistaradeildarleikina með Real 2010 og hef ekki séð Moratti fjölskylduna svo þetta er frábær tilfinning,” sagði Mourinho í samtali við Gazzetta World. „Ég er Interisti, en ég endurtek, ég vil ekki neinar sögusagnir. Ég mun ekki verða stjóri Inter á næsta tímabili og þeir hafa ekki spurt mig um að verða það. Kannski í framtíðinni, afhverju ekki? Ég fór aftur til Chelsea þar sem ég hafði þjálfað áður.”
Enski boltinn Mest lesið Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Formúla 1 Strákarnir sitja fastir Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Gat ekki munað nafnið eftir sextán hringi Sport Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti Modric skammast sín Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira