Skoða kaup á sjúkraþyrlu sem staðsett yrði á Suðurlandi Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 9. september 2016 23:22 „Þyrlur eins og þeir nota í Noregi eru mun fljótari í förum en sjúkraflug og þyrlur Landhelgisgæslunnar hér heima.“ Vísir/MHH/EPA
Sunnlendingar skoða nú hvort að tilefni sé til að kaupa þyrlu til sjúkraflutninga á Suðurlandi. Þyrlan yrði þá staðsett á Suðurlandi, en kostnaðurinn gæti verið sex til átta hundruð milljónir króna. „Þessi vinna er á undirbúningsstigi enda erum við að byrja að vinna þetta verkefni og erum að fá ráðgjafafyrirtæki til að útbúa og hjálpa okkur með kynningu í kerfinu,“ segir Styrmir Sigurðsson, yfirmaður sjúkraflutninga á Suðurlandi. Styrmir kynnti málið, ásamt Vilhjálmi Árnasyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, á opnum fundi í Vestmannaeyjum í gær þar sem þeir fóru yfir hugmynd sína um sérhæfða sjúkraþyrlu. Málið hefur verið unnið með Viðari Magnússyni, yfirlækni utanspítalaþjónustu á Íslandi, og Njáli Pálssyni, formanni fagdeildar sjúkraflutninga hjá Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. „Við erum fyrst og fremst að horfa til Noregs en þar eru sjúkraþyrlur sem hafa það hlutverk að flytja tæki og sérhæft starfsfólk á slysavettvang en þyrlan yrði mönnuð neyðarlækni og bráðatækni. Þyrlur eins og þeir nota í Noregi eru mun fljótari í förum en sjúkraflug og þyrlur Landhelgisgæslunnar hér heima,“ segir Styrmir. Ef af kaupunum yrði þá er hugmyndin sú að þyrlan verði staðsett á Suðurlandi þar sem mesti ferðamannafjöldinn er, auk þess að þjóna Vestmannaeyjum og stöðum sem eru úr alfaraleið.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira