Innlent

Úr athvarfi aftur í Vík

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar
Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir ljóst að þolendur í vinnumansalsmálum þurfi atvinnu.
Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir ljóst að þolendur í vinnumansalsmálum þurfi atvinnu. Vísir/Valgarð
Systurnar sem eru farnar af landi brott og eru með stöðu þolenda mansals í Vík í Mýrdal gistu aðeins fáeina daga í Kvennaathvarfinu. Þær fóru aftur til Víkur í Mýrdal um nokkurra daga skeið. Þær gistu hjá eiginkonu meints geranda í málinu í nokkra daga. Þær sneru svo aftur í Kvennaathvarfið nokkrum dögum áður en þær fóru úr landi.

Framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, Sigþrúður Guðmundsdóttir, segir ljóst að þolendur vinnumansals séu í brýnni þörf fyrir atvinnu. Slík úrræði myndu gagnast þeim best. „Ég er ekki tilbúin að tjá mig um þetta mál, samningur okkar við velferðarráðuneytið er aðeins við kvenkyns þolendur mansals. Þeim býðst sama þjónusta og okkar konum. En í þeim málum sem um er að ræða fórnarlömb mansals þá eru boðleiðirnar styttri, við erum í betri tengslum við yfirvöld og það eru styttri spottar að kippa í.

Ég tek það aftur fram að ég tjái mig ekki um einstaka mál en það má auðvitað reikna með að fórnarlömb vinnumansals þurfi á atvinnu að halda og ég get ímyndað mér að fyrir konur í þessari stöðu hafi verið erfitt að vera ekki í atvinnu. Íslensk lög og samningar gera ekki ráð fyrir því að fólk í þessari stöðu fái leyfi til atvinnu,“ segir Sigþrúður en möguleiki til þess að sækja um atvinnuleyfi þarf að grundvallast á dvalarleyfi sem veitt er á öðrum forsendum en vegna mansals.


Tengdar fréttir

Líklega komnar aftur í hendur glæpamanna

Systurnar sem sættu meintu mansali báðu sjálfar um flutning úr landi. Þær fengu 761 krónu á dag frá ríkinu. Auk systranna eru fjórir aðrir með stöðu brotaþola í málinu. Réttargæslumaður þeirra segir þær ekki hafa farið aftur til

Konurnar unnu í kjallaranum

Maðurinn sem var handtekinn stýrði fyrirtæki sem er verktaki hjá Drífu/Icewear.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×