Liðsfélagi Katrínar með MS-sjúkdóminn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. mars 2016 16:15 Ashleigh Mills og Katrín Ómarsdóttir. Vísir/Getty
Liðsfélagi landsliðskonunnar Katrínar Ómarsdóttir hefur þurft að leggja knattspyrnuskóna á hilluna þrátt fyrir að vera aðeins tvítug að aldri. Ashleigh Mills er með MS-sjúkdóminn sem er taugasjúkdómur þar sem taugafrumur í heila og mænu skemmast. Engin lækning er til við sjúkdómnum þótt til séu lyf sem geta hægt á framgangi hans eða haldið honum niðri. BBC segir frá þessu. Katrín og Ashleigh Mills áttu að spila saman á miðju Doncaster Rovers Belles í ensku úrvalsdeildinni í ár en ekkert verður af því. Ashleigh Mills er fyrrum unglingalandsliðskona og hefur verið hjá Doncaster Rovers Belles síðan 2013. „Ég hef reynt svo mikið að koma til baka en fæturnir hlýða ekki," sagði Ashleigh Mills á Twitter. Hún lék fjóra leiki með liðinu á síðasta tímabili þegar Doncaster Rovers vann sér sæti í úrvalsdeildinni. „Því miður er ekki hægt að sigrast á þessum sjúkdómi og hann hefur rænt drauminum mínum," skrifaði Ashleigh Mills ennfremur. Katrín kom til Doncaster Rovers í vetur eftir að hafa spilað í þrjú tímabil með Liverpool. „Það er sorglegt að sjá ungan leikmann með alla hæfileikana sem Ash hefur, þurfa að hætta að spila fótbolta," sagði Glen Harris, þjálfari Doncaster Rovers. „Það hefur verið mjög ánægjulegt að vinna með Ash. Hún mætir alltaf með bros á vör og jafnvel þótt hún mæti ekki alltaf í réttu græjunum," sagði Glen Harris.
Enski boltinn Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Fótbolti Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Fótbolti Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Handbolti Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Fleiri fréttir Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Sjá meira