Umdeilt lögreglumál strandar á einum meðlimi kviðdómsins Stefán Ó. Jónsson skrifar 3. desember 2016 10:04 Úr réttarsalnum á dögunum. VÍSIR/AP
Kviðdómurinn sem skipaður var í máli fyrrverandi lögreglumannsins Michael Slager mun ekki komast að sameiginlegri niðurstöðu. Fjölmiðlar vestanhafs greina frá því einn meðlimur kviðdómsins neiti að telja Slager sekan um að hafa brotið af sér í starfi þegar hann skaut hinn fimmtuga Walter Scott til bana í Suður Karólínu í fyrra. Málið vakti mikla reiði í Bandaríkjunum í kjölfar myndbandsbirtingar þar sem sést að Slager skaut Scott er hann hljóp í burtu frá lögreglumanninum. Hann hafi því ekki ógnað Slager með neinum hætti þegar hann var myrtur.Sjá einnig: Lögreglumaður ákærður fyrir morð Myndbandið vakti ekki síst hörð viðbrögð því Walter Scott er svartur. Lögreglan í Bandaríkjunum hefur setið undir gagnrýni vegna fjölda mála sem hafa komið upp þar sem hvítir lögreglumenn skjóta svarta. Lögregluþjónninn sagði að Scott hefði reynt að ná af sér byssunni, en vitni mótmælti því. Scott varð fyrir fimm af þeim átta skotum sem skotið var að honum á hlaupum. Lífgunartilraunir voru ekki reyndar.Sjá einnig: Nýtt myndband sýnir aðdraganda að skotum lögreglumannsins „Það er ljóst að kviðdómurinn mun ekki komast að sameiginlegri niðurstöðu,“ voru skilaboðin sem dómarinn fékk frá talsmanni kviðdómsins í gærkvöldi. Kviðdómurinn, sem skipaður er 12 einstaklingum og starfað hefur í um 5 vikur, mun koma aftur saman á mánudag. Alls hafa um 50 vitni gefið skýrslu í málinu. Michael Slager á yfir höfði sér allt að 30 ára fangelsi verði hann sakfelldur. Myndband af atvikinu umrædda má sjá hér að neðan.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Sjá meira