Gífurlegur metnaður var lagður í atriðið og var útgáfa lagsins töluvert lengri en sú sem aðdáendur þekkja af plötunni. Já, og sjálfur Kendrick Lamar, birtist skyndilega upp úr gólfinu og lét rímið flæða eins og enginn væri morgundagurinn.
Sviðið var allt þakið vatni sem Beyoncé, dansarar og Kendrick Lamar gengu í því og busluðu sín á milli.
Prince minnst í tónum
Einnig var tónlistarmanninum Prince, sem lést fyrr á þessu ári, gert hátt undir höfði. Listamenn á borð við Erykah Badu, Bilal, Stevie Wonder, Jennifer Hudson, Sheila E og Janelle Monáe fluttu lög meistarans.
Drake og Beyoncé unnu flest verðlaun á hátíðinni en einnig vann kvikmyndin Straight Outta Compton til nokkra verðlauna.
Magnað atriði Beyoncé og Kendrick Lamar má sjá hér fyrir neðan.
The full performance of Beyoncé & Kendrick Lamar from the 2016 BET Awards. https://t.co/JvC0uMe4yu
— ️ (@thotfulboy) June 27, 2016