Heimsfrægur söngvari bauðst til að syngja fyrir nýju ensku meistarana Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. maí 2016 08:30 Vísir/Getty
Það verður mikið um dýrðir á King Power leikvanginum í Leicester á morgun þegar leikmenn Leicester City taka við enska meistaratitlinum í fyrsta sinn. Claudio Ranieri, knattspyrnustjóri Leicester City, tókst nánast hið ómögulega að gera liðið að enskum meistara og það þegar enn voru tvær umferðir eftir af ensku úrvalsdeildinni. Liðið færi bikarinn afhentan í síðasta heimaleiknum sem verður á móti Everton á King Power leikvanginum seinni partinn á morgun. Ítalski söngvarinn Andrea Bocelli er einn þekktasti tenór heimsins og hann ætlar að mæta á morgun og syngja fyrir nýju meistarana. Það er ekki eins og Claudio Ranieri hafi hringt í landa sinn því það var einmitt öfugt. „Ég hef fylgst með Leicester í marga mánuði. Ég elska þessa fallegu sögu," sagði Andrea Bocelli sem er blindur eins og flestir vita. BBC segir frá. Andrea Bocelli fæddist með litla sjón en varð endanlega blindur eftir slys á fótboltavelli. Bocelli sagðist hafa hringt í Claudio Ranieri og boðist til að syngja í veislunni miklu á morgun. Það fylgir ekki sögunni hvort hann ætli að taka „We are the champions“ með Queen eða „The Winner Takes It All“ með Abba en verður bara að syngja „The best“ sem bæði Bonnie Tyler og Tina Turner sungu á sínum tíma.
Enski boltinn Mest lesið Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Enski boltinn HM-leikir í Boston í uppnámi Fótbolti West Ham áfram eftir spennutrylli og sigur í vítaspyrnukeppni Enski boltinn Truflaður af Aroni Pálmars i viðtali Sport Verstappen tikkar af golulistanum Formúla 1 „Við byrjum seinni hálfleikinn gjörsamlega á hælunum“ Sport Þrjú lið geta orðið deildarmeistarar | ÍR-ingar eygja enn von Handbolti Icelandair flaug Liverpool til Istanbúl Fótbolti „Sárt að kveðja gegn eigin vilja“ Fótbolti Sá besti í Super Bowl til Chiefs Sport Fleiri fréttir West Ham áfram eftir spennutrylli og sigur í vítaspyrnukeppni City og Liverpool mætast í átta liða úrslitunum Fékk rúmlega þrettán milljóna króna sekt fyrir ummæli um dómara Liverpool og Man. Utd kvarta yfir hryllingi frá Grok Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Leeds í átta liða úrslit bikarsins í fyrsta sinn síðan 2003 Stuðningsmaður Newcastle tryggði óvæntasta sigur helgarinnar gegn Sunderland Guardiola ætlar að skella sér í frí „Á þriggja daga fresti líður mér öðruvísi“ Marmoush skaut City áfram í bikarnum í fjarveru Haaland Garnacho í aðalhlutverki í sigri á Hollywood-liðinu Skrifar undir nýjan samning við Liverpool Madueke og Eze afgreiddu C-deildarliðið Íhuga brottrekstur eftir minna en mánuð „Ég hef ekkert að sanna“ Vill breytingar og býður dómurum á æfingasvæðið Segir dómgæslu skaða titilvonir Man City Man United gerði hærra tilboð í Bale Arsenal-menn létu bíða eftir sér í 30 mínútur og 51 sekúndu Sjáðu mörkin sem fengu stuðningsmenn Tottenham til að fara í hálfleik Algjört hrun Spurs sem er stigi frá fallsæti Wirtz snúi aftur gegn Wolves „Aðeins eitt lið sem reyndi að spila fótbolta í dag“ Sjáðu hælspyrnuna sem særði City, Dana klára United og þrennu Joao Pedro Fámennt lið Newcastle fyrst til að vinna lærisveina Carrick Joao Pedro sá um svakalegan viðsnúning Skytturnar styrktu stöðu sína á toppnum City missti tvisvar niður forystu gegn Forest Sonur Fletchers í sex leikja bann fyrir hómófóbísk ummæli Segir fulla innistæðu fyrir reiði Slot við leikmenn Sjá meira