Margar litlar sögur hjá Leicester urðu að einu stóru ævintýri Tómas Þór Þórðarson skrifar 7. maí 2016 08:00 Fyrirliðinn Wes Morgan skoraði markið sem á endanum tryggði Leicester Englandsmeistaratitilinn. vísir/Getty
Klukkan hálf fimm í dag ganga leikmenn Leicester út á King Power-völlinn og mæta Everton. Fyrir tímabilið hefðu eflaust margir giskað á að þessi leikur yrði mikilvægur fyrir liðið í fallbaráttunni. En svo er ekki. Leikmenn Leicester ganga til leiks á laugardaginn sem enskir meistarar. Besta liðið á Englandi. Þetta ótrúlega afrek varð að veruleika á mánudagskvöldið þegar Tottenham mistókst að vinna Chelsea á Stamford Bridge. Leicester er ekki bara meistari öllum að óvörum heldur er það meistari þegar tveir leikir eru enn þá eftir af deildinni. Þetta er í fyrsta sinn sem Leicester verður meistari. Sömu liðin hafa meira og minna séð um að vinna deildina undanfarna áratugi en þetta er í fyrsta sinn síðan 1978 að lið verður meistari í fyrsta sinn.Smásagnasafn Tímabilið hjá Leicester hefur verið eins og frábært smásagnasafn. Margar litlar sögur sem verða að einu mögnuðu ævintýri. Í liðinu er engin stórstjarna heldur samansafn af mönnum sem hafa sumir hverjir ef ekki flestir þurft að fara Krýsuvíkurleiðina á toppinn. Sex smásögur má lesa hér í kringum greinina um helstu hetjur Leicester-liðsins. Ekkert lið vinnur ensku úrvalsdeildina með heppni. Claudio Ranieri, sem flestir töldu að myndi fara niður með liðið ef hann myndi þá endast veturinn, er búinn að mynda ótrúlega liðsheild og sýna snilli sína sem þjálfari. Fyrst, þegar liðin í deildinni voru kannski enn að vanmeta Leicester, beitti liðið eitruðum sendingum fram og treysti á hraða framherja sinna til að klára dæmið. En svo sýndi Ranieri enn meiri klókindi þegar á leið tímabilið. Þá fóru varnarmenn liðsins og markvörðurinn að sýna snilli sína en liðið hélt hreinu hvað eftir annað þegar stjórar deilarinnar héldu að þeir væru búnir að loka á sóknarvopnin.Riyad Mahrez og Jamie Vardy eru lykilmennirnir í sóknarleiknum.vísir/afpAuðmjúkur öldungur „Ekki vekja mig af þessum draumi,“ sagði Claudio Ranieri, stjóri Leicester, fyrr á þessu ári, spurður hvort hann teldi að Leicester gæti klárað þetta. Þessi 64 ára gamli Ítali af gamla skólanum er búinn að heilla enska fótboltaáhugamenn með auðmýkt sinni og herramennsku. Hann hefur líka gert hlutina nokkuð einfalda. Þegar Leicester hélt loksins hreinu fyrr á tímabilinu eftir að fá á sig mark í hverjum leik, gerði hann eins og þjálfari í fimmta flokki myndi gera og bauð liðinu í pitsupartí. Það skiptir nefnilega engu máli hvað þú ert gamall: Öllum finnst pitsur góðar. Með gleði, dugnað, vilja og eina rjúkandi pitsusneið að vopni bjó Ranieri til lið sem afrekaði það sem enginn hélt að væri hægt: Vinna ensku deildina án þess að vera með vasana fulla af seðlum. Gerist þetta aftur? Nei, líklega ekki. Meira að segja Ranieri er búinn að útiloka það. Hann sagði við fréttamenn á æfingu á þriðjudaginn að svona afrek myndi enginn sjá aftur. Kannski er það rétt hjá honum. Í fótboltaheiminum í dag eru peningar allt og þótt litlu liðin á Englandi séu að verða mun ríkari verða þau ríkustu alltaf ríkari. Þó þessi Englandsmeistaratitill gefi litlu liðunum von og sé líklega besta fótboltasaga síðustu áratuga verður hún að öllum líkindum spark í afturendann á stóru strákunum sem leyfa þessu ekki að gerast aftur. En guð minn góður hvað það var gaman meðan á stóð.SMÁSAGNASAFNIÐ Í LEICESTERvísir/gettyGerði þetta fyrir pabbaRiyad Mahrez25 ára miðjumaður Riyad Mahrez átti erfiða æsku en hann ólst upp í Sarcelles-hverfinu í París sem er þekkt fyrir mikið ofbeldi og var það fyrir augum hans alla daga. Faðir Mahrezar, Ahmed, hafði mikil áhrif á hann í æsku og sendi hann í fótbolta til að passa að hann færi ekki út af sporinu. Faðir hans mætti á hvern einasta leik frá því hann hóf að æfa með hverfisliðinu en féll frá þegar Mahrez var fimmtán ára úr hjartaáfalli. Mahrez hét því að komast alla leið og gera það fyrir föður sinn. Hann sló í gegn í frönsku 2. deildinni með Le Havre og varð hluti að Leicester-uppbyggingunni fyrir tveimur árum. Hann fór úr því að skora fjögur mörk í fyrra í það að skora 17 mörk og gefa tíu stoðsendingar í ár. Allt fyrir gamla manninn sem gerði allt fyrir hann.vísir/gettyFrá botninum á toppinnKasper Schmeichel29 ára markvörður Það er ekkert grín að bera nafn eins og Schmeichel. Það getur þó haft sína kosti eins og hjá Kasper sem fékk samning hjá Manchester City 15 ára og var kominn í markið þar þremur árum síðar. Hann var ekki tilbúinn og hann vissi það. Kasper tók því auðmjúka ákvörðun og fór á botninn til Notts County í D-deildinni. Eftir eitt frábært ár þar spilaði hann með Leeds í B-deildinni og var kjörinn í besta lið áratugarins 2005-2015 í henni. Að fara niður og byggja sig upp var frábær ákvörðun en hann er í dag landsliðsmarkvörður Danmerkur, fótboltamaður Danmerkur 2015, einn besti markvörður ensku úrvalsdeildarinnar og varð auðvitað Englandsmeistari sama dag og pabbi hans, 23 árum síðar.vísir/gettyEkki hætta að láta þig dreymaDanny Drinkwater26 ára miðjumaður Danny Drinkwater gat leyft sér að dreyma um Englandsmeistaratitilinn þegar hann var ungur maður. Hann var líka í unglingaliði og varaliði Manchester United. Hann fékk aldrei að spila með aðalliðinu og eftir lánssamninga hjá fjórum neðrideildarfélögum kvaddi hann leikhús draumanna og samdi við Leicester í B-deildinni. „Ég hætti að leyfa mér að dreyma um meistaratitilinn þegar ég fór frá Manchester United. Og nú er ég meistari. „Þetta er sturlað,“ sagði Drinkwater í vikunni. Fyrir fjórum árum gafst hann upp á draumum sínum og fór til Leicester. Fyrir tveimur árum komst hann upp um deild og í ár komst hann í landsliðið og er enskur meistari. Aldrei að gefa frá sér draumana.vísir/gettyFæreyja-fíaskó, svo titillClaudio Ranieri65 ára þjálfari Flestum finnst auðvelt að samgleðjast Claudio Ranieri enda mikill herramaður. Á 30 ára löngum þjálfaraferli hafði hann aldrei áður unnið landstitil en gerði það svo á ólíklegasta mátann. Maðurinn sem var rekinn frá Chelsea með orðum eigandans: „Hann mun aldrei vinna titla,“ mætir í lokaumferðinni aftur á sinn gamla heimavöll og fær heiðursvörð frá leikmönnum fráfarandi meistaraliðsins. Ranieri var úrskurðaður látinn í þjálfarafræðunum eftir að hann var rekinn frá gríska landsliðinu. Þar tapaði hann meðal annars fyrir Færeyingum sem eru ekki þekktir fyrir að vinna marga fótboltaleiki. Eina leiðin til að svara fyrir sig er að vinna og hvað þá enska meistaratitilinn með Leicester.vísir/gettyÍ utandeild fyrir fjórum árumJamie Vardy29 ára framherji Framherjinn Jamie Vardy, sem er markahæsti leikmaður nýkrýndra Englandsmeistara, Leicester, spilaði með Fleetwood í utandeildinni fyrir fjórum árum. Nú er hann einn af þremur markahæstu leikmönnum úrvalsdeildarinnar, enskur meistari og á leið á Evrópumótið með enska landsliðinu. Vardy hefur alltaf verið naskur markaskorari en glímdi við að vera heitur og kaldur. Skora mikið eitt tímabilið en lítið það næsta. Leicester tók séns á honum og það var kannski eins gott að hann skoraði bara fimm mörk í fyrra því nú eru þau orðin 22. Þeir eru ekki margir sem fara úr utandeildinni í það að vinna þann stóra á fjórum árum.vísir/gettyLeitinni að Makélélé lokiðN’Golo Kante25 ára miðjumaður Franski varnarsinnaði miðjumaðurinn Claude Makélélé var svo góður í því sem hann gerði, að hlutverk á vellinum var nefnt eftir honum. En síðan hann hætti hefur verið leitað að öðrum eins leikmanni. Hann er fundinn. Hinn 25 ára gamli Frakki N’Golo Kante, sem spilaði í frönsku utandeildinni fyrir fimm árum, er sá maður. Það skondna við það er að staðarblaðið í Boulogne-sur-Mer sagði í fyrirsögn þegar hann skoraði sitt fyrsta mark árið 2012 að þarna væri nýr Makélélé fundinn. Ekki það að Makélélé hefði skorað svo mikið af mörkum. Kaupin á Kante eru ein af kaupum tímabilsins en upprisa hans er merkileg eins og hjá öðrum hjá Leicester. Úr utandeild í Frakklandi í Englandsmeistara og EM-fara á þremur árum.
Enski boltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Leik lokið: KR - ÍA 5-1| Hefndu ófaranna á Skaganum Íslenski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Íslenski boltinn Þróttarar brutu bikarinn Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Fleiri fréttir Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester United - Manchester City | Baráttan um Manchester-borg Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Sjá meira