Leicester þarf að bíða eftir titlinum | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. maí 2016 15:00 Wes Morgan jafnaði metin með skalla. Vísir/Getty
Leicester City tókst ekki að tryggja sér Englandsmeistaratitilinn þegar liðið mætti Manchester United á Old Trafford í dag. Leiknum lyktaði með 1-1 jafntefli en með sigri hefði Leicester tryggt sér fyrsta Englandsmeistaratitilinn í sögu félagsins. Leicester gæti þó orðið meistari á morgun ef Tottenham mistekst að vinna Chelsea á Stamford Bridge. United byrjaði betur á heimavelli í dag og komst yfir þegar Anthony Martial skoraði sitt níunda deildarmark eftir sendingu frá Antonio Valencia. Forystan entist þó aðeins í níu mínútur því á 17. mínútu jafnaði Wes Morgan metin með skalla eftir aukaspyrnu Dannys Drinkwater. Umræddur Drinkwater, sem er uppalinn hjá United, fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt þremur mínútum fyrir leikslok. Hann verður því í banni gegn Everton um næstu helgi. Úrslit dagsins voru slæm fyrir United sem er fjórum stigum á eftir nágrönnum sínum í City sem eru í 4. sætinu. Bæði lið eiga þrjá leiki eftir.Man Utd 1-0 Leicester Man Utd 1-1 Leicester
Enski boltinn Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Fótbolti Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Körfubolti Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Körfubolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Enski boltinn Fleiri fréttir Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Sjá meira