Enski boltinn

Fuchs vill sparka í NFL-deildinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Fuchs vill sparka NFL-bolta í framtíðinni.
Fuchs vill sparka NFL-bolta í framtíðinni. vísir/getty
Austurríski landsliðsmaðurinn í Leicester City, Christian Fuchs, er farinn að huga að því hvað hann vill gera er knattspyrnuferlinum lýkur.

Þessi 29 ára gamli leikmaður á sér þann draum um að spila í NFL-deildinni.

„Minn metnaður er sá að verða sparkari í NFL-deildinni. Ég er ekkert að grínast með það,“ sagði Fuchs ákveðinn.

„Ég veit að ég get sparkað 60 eða 65 jarda vallarmörk. Draumar geta ræst.“

Fjölskylda Fuchs býr í New York og hann ætlar að flytja til Bandaríkjanna er knattspyrnuferlinum lýkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×