Innlent

Malbikað fyrir hundruð milljóna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Alls verður lagt malbik á tæpa 17 kílómetra eða 125 þúsund fermetra.
Alls verður lagt malbik á tæpa 17 kílómetra eða 125 þúsund fermetra. Fréttablaðið/Vilhelm
Kostnaður við malbiksframkvæmdir í Reykjavík í sumar er áætlaður 710 milljónir króna. Alls verður lagt malbik á tæpa 17 kílómetra eða 125 þúsund fermetra. Borgarráð fékk í gær kynningu á fyrir­huguðum malbiksframkvæmdum.

Í frétt á vef Reykjavíkurborgar segir að áætlað sé að verja um 150 milljónum króna til malbiksviðgerða í ár. Malbiksyfirlagnir munu kosta borgina 560 milljónir. Alls gerir þetta 710 milljónir króna.

Meðal stórra verkefna eru m.a. Bugða frá Kambavaði til Búðatorgs, Suðurlandsbraut og Laugavegur, Norðlingabraut frá Þingtorgi að Helluvaði, Skólasel frá Árskógum að Ölduseli, Bústaðavegur frá Háaleitisbraut að Grensásvegi, Stóragerði frá Heiðargerði að Smáagerði, Fjallkonuvegur, Víkurvegur, Hofsvallagata, Framnesvegur og Skúlagata.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×