Diouf: Ég er heimsklassa leikmaður en Carragher er drasl Tómas Þór Þórðarson skrifar 25. febrúar 2016 10:30 El-Hadji Diouf og Steven Gerrard eru engir vinir. vísir/getty
El-Hadji Diouf, fyrrverandi leikmaður Liverpool og senegalska landsliðsins, setur orðastríð sitt og gömlu liðsfélaga sinna, Steven Gerrard og Jamie Carragher, aftur af stað í viðtali við fótboltatímaritið So Foot. Það er vefur Eurosport sem greinir frá. Þessi skrautlegi leikmaður hefur áður sagt að Steven Gerrard, hinn dýrkaði og dáði fyrirliði Liverpool til margra ára, sé afar óvinsæll utan Liverpool og þá ásakaði hann Gerrard einnig um rasisma. Hvorki Jamie Carragher né Steven Gerrard tala neitt sérstaklega vel um Diouf í ævisögum sínum sem komu út á síðustu mánuðum. Það sem þeir höfðu að segja um hann í þeim fór ekkert sérstaklega vel í Senegalann. „Munurinn á mér og Jamie Carragher er, að ég er heimsklassa leikmaður og hann er drasl. Hann er svona skíthæll sem skrifar bók og minnist á mig endalaust. Hann fær ekki eina setningu um sig í minni bók því hann er algjör aumingi,“ segir Diouf í viðtalinu þar sem hann notar mikið af blótsyrðum. Gerrard segir í ævisögu sinni að Diouf sé ekki í miklu uppáhaldi hjá sér og hann hafi ekki verið góð kaup fyrir Liverpool. Diouf svarar fyrir það í nýja viðtalinu og gerir það með látum. „Ég bar landsliðið á bakinu í mörg ár og var með fjórtán milljónir stuðningsmanna á herðum mínum. Þegar við unnum var það mér að þakka og þegar við töpuðum var það mér að kenna. Steven Gerrard náði ekki að vera einn hundraðasti af því fyrir England. Hann hefur aldrei gert neitt á HM eða EM,“ segir Diouf. „Gerrard hélt að ég bæri ekki virðingu fyrir Liverpool því ég gerði bara það sem ég vildi þegar ég kom þangað. En hann er maðurinn sem gerði út um vonir síns liðs þegar hann rann á móti Chelsea. Það er engin tilviljun að Liverpool hefur aldrei unnið ensku úrvalsdeildina. Menn uppskera eins og þeir sá,“ segir El-Hadji Diouf
Enski boltinn Tengdar fréttir Sakar Liverpool og Gerrard um kynþáttarfordóma El Hadji Diouf sakar Liverpool og fyrrum fyrirliða liðsins, Steven Gerrard, um kynþáttafordóma en hann segir að félaginu sé illa við þeldökka leikmenn sem séu ekki breskir. 15. september 2015 15:30 Segir ásakanir um rasisma hjá Gerrard ærumeiðandi Senegalinn El Hadji Diouf sagði að allir vita að Steven Gerrard er illa við svart fólkt 16. september 2015 09:30 Diouf: Gerrard er sjálfselskur El Hadji Diouf, fyrrum leikmaður Liverpool, segir að Steven Gerrard sé ekki vinsæll meðal annarra leikamanna liðsins. 19. október 2012 22:45 El Hadji Diouf: Hata Carragher og Gerrard hugsaði bara um að skora Fyrrum leikmaður Liverpool og fleiri félaga, El Hadji Diouf, vandar ekki fyrrum félögum sínum hjá Liverpool kveðjurnar í viðtali við insidefutbol vefsíðuna. 27. desember 2015 22:30 Mest lesið Slóst eftir leik og var rekinn út af: „Viðbrögðin í leikslok voru hræðileg“ Fótbolti Messi felldi tár í leikslok: „Enginn draumaendir“ Fótbolti Spánverjar heimsmeistarar Fótbolti Þekkt hnefaleikakona látin aðeins 26 ára gömul Sport Strákarnir fengu silfur á EM Körfubolti „Satt best að segja er mér drullusama“ Íslenski boltinn Hetjan Torres: „Þetta voru örlögin“ Fótbolti „Flengdir á beran bossann og þá þarf að skammast sín“ Íslenski boltinn „Vorum bara litlar í okkur og vorum bara hérna að grenja“ Íslenski boltinn Infantino veðurtepptur og Spánn hætti við æfingu Fótbolti Fleiri fréttir Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Sjá meira
Sakar Liverpool og Gerrard um kynþáttarfordóma El Hadji Diouf sakar Liverpool og fyrrum fyrirliða liðsins, Steven Gerrard, um kynþáttafordóma en hann segir að félaginu sé illa við þeldökka leikmenn sem séu ekki breskir. 15. september 2015 15:30
Segir ásakanir um rasisma hjá Gerrard ærumeiðandi Senegalinn El Hadji Diouf sagði að allir vita að Steven Gerrard er illa við svart fólkt 16. september 2015 09:30
Diouf: Gerrard er sjálfselskur El Hadji Diouf, fyrrum leikmaður Liverpool, segir að Steven Gerrard sé ekki vinsæll meðal annarra leikamanna liðsins. 19. október 2012 22:45
El Hadji Diouf: Hata Carragher og Gerrard hugsaði bara um að skora Fyrrum leikmaður Liverpool og fleiri félaga, El Hadji Diouf, vandar ekki fyrrum félögum sínum hjá Liverpool kveðjurnar í viðtali við insidefutbol vefsíðuna. 27. desember 2015 22:30