Gefa of mikinn afslátt af öryggi í fjallaferðum Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 12. febrúar 2016 07:00 Árni Tryggvason, fjallgöngumaður. Mynd/Árni „
Of oft eru aðilar með of litla kunnáttu að taka að sér fararstjórn í ferðum gönguhópa,“ segir Árni Tryggvason fjallaleiðsögumaður. Hann telur marga fararstjóra gefa of mikinn afslátt af öryggi í fjallgöngum. „Það er ekki nóg að hafa fararstjóra sem hefur bara sjálfstraustið og ánægjuna af fjallaferðunum. Engu að síður eru fjölmargir mjög hæfir aðilar sem fara með fólk á fjöll. Hinir eru bara of margir,“ segir Árnir. Allt of mikið vanti upp á öryggisviðmið. „Þeir sem eru í þessu af fullri alvöru, til dæmis í björgunarsveitum eða Alpaklúbbnum, fara eftir mjög ströngum reglum. Til dæmis er algjör regla að ef gengið er á fjöll að vetrarlagi er maður með brodda, ísöxi og snjóflóðabúnað. Þetta áhugasama fólk í gönguhópunum veit fæst hvað snjóflóðabúnaður er,“ segir Árni. „Góður fararstjóri þarf að hafa alla tækni á hreinu varðandi notkun brodda, ísaxar og snjóflóðabúnaðar. Auk rötunar- og skyndihjálparkunnáttu. Allir þeir sem með þeim fara á fjöll þurfa að hafa þann sama búnað og kunnáttuna til að nota hann en fararstjóri þarf að vera stigi ofar,“ segir hann. Að mati Árna ber mikið á því að hópar noti keðjubrodda sem hannaðir séu fyrir tuttugu gráðu bratta þótt gengið sé í mun meiri bratta. „Ég get rakið lista af slysum vegna keðjubrodda. Þeir gefa fólki traust til að fara í meiri bratta en það ræður við og svo rennur það og er kannski ekki með ísöxi. Ef það hefur ekki ísöxina getur það ekki stöðvað sig,“ segir hann. Þegar Árni hefur bent á vandamálið segir hann suma hafa tekið gagnrýninni illa og notað það sér til varnar að hafa gengið á fjöll í mörg ár með þess lags búnað án þess að lenda í slysi. Árni líkir því við að keyra beltislaus og segir það heppni að ekki verði slys. Þá segir Árni að hugsanlega megi rekja slysið á Skarðsheiði síðastliðinn laugardag, þar sem par rann hundrað metra niður fjallið og maður slasaðist alvarlega, til notkunar keðjubrodda og vanmats á aðstæðum.Halli nokkurra þekktra fjallshlíða yfir þeim tuttugu gráðum sem keðjubroddar eru ætlaðir fyrir.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira