Margrét Lára og nýja Valsliðið í beinni á Stöð 2 Sport 2 í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. maí 2016 16:30 Margrét Lára Viðarsdóttir fagnar með Val fyrir átta árum. Vísir/Stefán
Önnur umferð Pepsi-deildar kvenna fer fram í dag en þá fara fram allir fimm leikirnir í umferðinni. Eins og alltaf í sumar verður einn leikjanna í beinni á sportstöðvum 365. Margrét Lára Viðarsdóttir og félagar hennar í Val spila í kvöld sinn fyrsta heimaleik í Pepsi-deild kvenna í sumar þegar liðið fær KR í heimsókn. Þetta verður fyrsti deildarleikur Margrétar Láru á Hlíðarenda í átta ár. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og hann verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2. Margrét Lára skoraði í fyrsta leik Vals á Íslandsmótinu en þá gerði liðið 2-2 jafntefli á móti Fylki í Árbæ. Þetta var ellefti leikurinn í röð sem hún skorar í úrvalsdeild kvenna því Margrét Lára skoraði í tíu síðustu leikjum sínum þegar hún lék síðast í deildinni sumarið 2008. Margrét Lára er bara ein af mörgum nýjum leikmönnum í liði Vals en í byrjunarliðinu á móti Fylki í fyrstu umferðinni voru fimm leikmenn sem voru ekki með Val í fyrra. Þetta voru auk Margrétar Láru þær Sandra Sigurðardóttir, Dóra María Lárusdóttir, Elísa Viðarsdóttir og Rúna Sif Stefánsdóttir. Í viðbót hefur liðið fengið til sín öfluga leikmenn eins og þær Pálu Marie Einarsdóttur, Thelmu Björk Einarsdóttur og Örnu Sif Ásgrímsdóttur en sú síðastnefnda verður líklega ekkert með í sumar vegna meiðsla. Önnur umferðin verður síðan gerð upp í Pepsi mörkum kvenna annað kvöld en þar mun Helena Ólafsdóttir fá til sín góða gesti til að ræða það sem gerist í leikjunum fimm sem fara fram í kvöld.
Pepsi Max-deild kvenna Tengdar fréttir Pepsi-mörk kvenna byrja í kvöld Fyrsti þátturinn verður í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport og sýndur beint á Vísi. 17. maí 2016 16:00 Sjáðu fyrsta þáttinn af Pepsi-mörkum kvenna í heild sinni Fyrsti þátturinn af Pepsi-mörkum kvenna var sýndur í kvöld á Stöð 2 Sport 2 HD. 17. maí 2016 21:30 Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Uppgjörið: FH-Apollon 1-0 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Fótbolti Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Allt teymi Heimis framlengir Fótbolti Fleiri fréttir „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Sjá meira
Pepsi-mörk kvenna byrja í kvöld Fyrsti þátturinn verður í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport og sýndur beint á Vísi. 17. maí 2016 16:00
Sjáðu fyrsta þáttinn af Pepsi-mörkum kvenna í heild sinni Fyrsti þátturinn af Pepsi-mörkum kvenna var sýndur í kvöld á Stöð 2 Sport 2 HD. 17. maí 2016 21:30
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn