Ráðuneyti rannsaki mál hafnarstjórnar Garðar Örn Úlfarsson skrifar 1. maí 2015 11:45 Gylfi Ingvarsson. Vísir/Vilhelm
Fulltrúar Samfylkingarinnar og VG í hafnarstjórn Hafnarfjarðar segjast gera alvarlega athugasemd við vinnubrögð meirihlutans í máli starfsmanns hafnarinnar sem veitt var áminning og vilja úttekt innanríkisráðuneytisins á starfi meirihlutans og aðkomu bæjarstjórans að málinu. „Allt ferlið í þessu máli stenst ekki stjórnsýslulög. Það er ekki hægt að senda bréf í nafni hafnarstjórnar þegar hafnarstjórn hefur aldrei fjallað um þau,“ segir Gylfi Ingvarsson, fulltrúi Samfylkingar í hafnarstjórn. Málið á upphaf í að Unnur Lára Bryde, fulltrúi Sjálfstæðisflokks og formaður hafnarstjórnar, áminnti hafnarstarfsmann sem sagði starfsfélögum sínum frá því að hann hefði verið kallaður á fund í ráðhúsi bæjarins og verið þar spurður um launamál og stjórnendur hjá höfninni. Taldi starfsmaðurinn sig þar hafa rætt við bæjarstjóra en síðar kom í ljós að svo var ekki. Áminningin var dregin til baka skömmu eftir að hún var veitt. „Það hefur alltaf verið dregið í efa að þetta viðtal hafi átt sér stað og sagt að bæjarstjórinn hafi ekki vitað af því. Samt er hann í húsinu á sama tíma og viðtalið fór fram fyrir framan skrifstofuna hans. Síðan hefur maður fengið þær upplýsingar að það var ráðgjafi bæjarstjórans sem átti þetta viðtal við hafnarstarfsmanninn,“ segir Gylfi sem vísar þar til starfsmanns fyrirtækisins R3-ráðgjafar.Unnur Lára Bryde, formaður hafnarstjórnar Hafnarfjarðar.Vísir/StefánHafnar því að nokkuð sé athugavert „Þetta mál er búið að fara fyrir bæjarráð svo ég veit ekki af hverju verið er að halda því á lífi,“ segir Unnur Lára Bryde, fulltrúi Sjálfstæðisflokks og formaður hafnarstjórnar. Unnur hafnar því að nokkuð sé athugavert við vinnubrögð meirihlutans í máli hafnarstarfsmannsins. „Við teljum svo ekki vera. Þetta mál var algerlega unnið með lögmanni Sambands íslenskra sveitarfélaga og vð studdumst við ráðleggingar þeirra. Í bæjarráði hefur verið lagt fram bréf frá lögmanninum þar sem farið er vandlega yfir vinnubrögðin.“ Ósk minnihlutans sem sett var fram í hafnarstjórn í gær verður tekin fyrir á næsta fundi bæjarstjórnar. „Það hefur þegar verið samþykkt í bæjarstjórn allsherjar úttekt á stjórnsýslu og rekstri allra sviða bæjarins og þetta fellur undir það,“ bendir Unnur Lára á aðspurð um hver afdrif málsins gætu orðið.
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Sjá meira