Alvarlegt að bjóða ekki sálfræðiaðstoð Svavar Hávarðsson skrifar 11. maí 2015 00:01 Hlutfallslega færri hætta námi í VMA en í öðrum framhaldsskólum. Vísir/Auðunn „
Það er hægt að mæla árangurinn í tölum, en líka í því að fleiri nemendum líður vel. Þetta hefur góð áhrif á skólabraginn,“ segir Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri (VMA), spurður um þá ákvörðun skólans að hafa sálfræðing í starfsliði skólans, en um einsdæmi er að ræða í íslenskum framhaldsskólum. Um nokkurt skeið hefur Kristrún Birgisdóttir, sérfræðingur hjá Námsmatsstofnun, hvatt til samvinnu á milli mennta-, heilbrigðis-, og velferðarkerfisins til að takast á við að minnka brotthvarf frá námi og segir hún að styðja þurfi fjárhagslega við bakið á þeim skólum sem taka við nemum í hvað mestri brotthvarfshættu. Þetta er þriðji veturinn sem boðið er upp á þessa þjónustu í VMA en sálfræðingur skólans er í 60% starfi. Framtíðaráætlanir gera ráð fyrir að verkefninu verði haldið áfram, þó verið sé að glíma við erfiðan rekstur í VMA eins og öðrum framhaldsskólum.Hjalti Jón Sveinsson„Við bættum sálfræðingnum við til að auka stoðþjónustu við nemendur, og það að gefnu tilefni. Ýmis vandamál nemenda, ekki síst andleg vanlíðan, voru sífellt meira að koma inn á borð námsráðgjafanna. Sem ég held að sé tilfellið í flestum framhaldsskólunum,“ segir Hjalti og bætir við að um gæfuspor hafi verið að ræða enda mikið sótt í þetta úrræði af nemendum. Bæði er um einstaklingsviðtöl að ræða og hópastarf í hugrænni atferlismeðferð. Ekki er gert ráð fyrir sálfræðingi í rekstrarmódeli skólanna í dag, og Hjalti segir það mjög alvarlegt. „Ég hef oft haft á orði að við eigum ekki aðeins að tryggja nemendum líkamlega heilsugæslu heldur ekki síður andlega. Það er mjög margt sem þessir krakkar eru að glíma við,“ segir Hjalti og nefnir erfið ár frá hruni í því samhengi. Einnig nefnir Hjalti nýja stöðu sem komin er upp með samfélagsmiðlunum, og dökkum hliðum þeirra eins og einelti og fleira.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira