Víðsjá Lárus Sigurður Lárusson skrifar 11. maí 2015 10:50 Í síðustu viku birtist grein eftir þann sem þetta ritar á vefnum visir.is um íslensku óperuna og verkefnaval þar á bæ. Það kom greinarhöfundi heldur en ekki betur á óvart að heyra sama umfjöllunarefni í þættinum Víðsjá nú síðastliðinn sunnudag í endurflutningi. Þóttist greinarhöfundur heyra óm sinna eigin skrifa í þættinu og þótti ánægjulegt. Þá gladdist höfundur ekki síður yfir því að þáttarstjórnandi vísaði til hans sem ungs lögfræðings, maður verður svo ginkeyptur fyrir skjallinu um fertugt. Ástæða þessara skrifa nú er sú að viðmælendur í téðum Viðsjárþætti impruðu á mörgum álitaefnum sem höfundi hafa brunnið á brjósti. Af þeim skulu tvö rædd hér, hið fyrra íslenskar óperur og hið síðara hvað felst í óperuforminu. Óperur eru nefnilega óperur, jafn kindarlega og það kann að hljóma. Í gegnum tíðina hefur verið almenn tilhneiging til þess að flokka óperur sem tónverk fyrst og framst en minna farið fyrir öðrum hliðum óperuformsins. Ópera er nefnilega bæði leikverk og tónverk og góð ópera sameinar báða miðla í jöfnum hlutföllum. Virkilega góð ópera er allt í senn sviðsverk, tónverk, bókmenntaverk, sjónlist og jafnvel dansverk. Hér trónir á toppnum Íslandsvinurinn Richard Wagner, sem nýtti í óperum sínum m.a. fornan bókmenntaarf íslenskan. Óperur af þessum sökum eru ekki einkamál íslensku óperunnar. Þvert á móti á öflugt og metnaðarfullt óperuhús á Íslandi að vera hagmunamál allra þeirra sem starfa við leikhús og sjónrænar listir og vitaskuld tónlist. Óperan er samruni allra lista. Hér liggur ábyrgðin víðar en bara hjá íslensku óperunni og hefur höfundur t.d. lengi undrast á því að sinfóníuhljómsveit Íslands skuli ekki hafa mótað sér ábyrga stefnu á þessu sviði. Þegar öllu er á botninn hvolft þá leikur sinfóníuhljómsveitin lykilhlutverk í óperuflutningi. Allt frá fyrstu tíð, alltént frá þeim tíma að óperur fóru að berast hingað til lands í einhverju mæli af alvöru, hafa Íslendingar tekið þessu listformi opnum örmum. Mörgum finnst þetta e.t.v. skrítin fullyrðing og halda hið gagnstæða en þetta er að engu síður satt. Íslensk söngmenntun hefur blómstrað og íslenskir söngvarar gert það gott úti í hinum stóra heimi. Að sama skapi opnuðu íslensk tónskáld faðminn fyrir þessu listformi. Greinarhöfundi hefur t.d. alltaf fundist íslensk söngljóð bera mikinn keim af óperum, oft mun meiri en af klassískum ljóðasöng (lieder). Þá hafa yngri tónskáld íslensk verið ötul við að halda þessu góða og fjölbreytta listformi á lofti. Gróskan á þeim vettvangi hefur verið þvílík að í dag geta Íslendingar státað sig af því að vera komnir á það stig að eiga klassísk verk á þessu sviði. Þar vísar greinarhöfundur til óperunnar Þrymskviðu eftir Jón Ásgeirsson sem kölluð hefur verið fyrsta íslenska óperan. Í huga höfundar er þessi ópera orðin sígilt verk sem hefur upp á að bjóða flest af því sem einkennir góða óperu. Íslenska óperan hefur í gegnum tíðina lagt sitt af mörkum þegar kemur að flutningi nýrra íslenskra ópera þótt með nokkuð bortakenndum hætti hafi verið. Hér þarf að gera betur. Fyrir nokkurum árum stóð Hrólfur Sæmundsson barýtónsöngvari fyrir því að halda sumaróperu í Reykjavík, eins konar óperufestival. Því miður náði þessi tilraun ekki flugi. Með sífellt vaxandi straumi erlendra ferðamanna til landsins er vel þess virði að velta því fyrir sér hvort ekki sé kominn tími til að endurvekja þessa sprotastarfsemi. Hér er óplægður akur fyrir ferðaþjónustuna jafnt sem íslensku óperuna og gæti verið lyftistöng fyrir óperumenningu á Íslandi. Íslenskt óperufestival, sumarópera við sundin blá. Hér mætti áherslan vera á nýjar óperur, tilraunir í leikhúsi og nýjar og spennandi upplifanir fyrir túrista og heimamenn. Nú er höfundur e.t.v. farinn að láta sig dreyma en gleymum því ekki að Harpan laðaði að fjölda erlendra ferðamanna eftir að hún var opnuð og fjöldi erlendra gesta á tónleikum sinfóníuhljómsveitar Íslands margfaldaðist. Það sem eftir situr er að tækifærin liggja víða en þeir einir fiska sem róa. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tengdar fréttir Íslenska óperan – verkefnaval og metnaður Sá sem þetta ritar hefur haft brennandi áhuga á óperum í áratugi og bæði sótt sér menntunar í söng og ferðast víðsvegar um heiminn til þess að sækja óperusýningar. 6. maí 2015 14:05 Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Sjá meira
Íslenska óperan – verkefnaval og metnaður Sá sem þetta ritar hefur haft brennandi áhuga á óperum í áratugi og bæði sótt sér menntunar í söng og ferðast víðsvegar um heiminn til þess að sækja óperusýningar. 6. maí 2015 14:05
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar