Gæsluvarðhald staðfest yfir manni sem grunaður er um aðild að stunguárás Aðalsteinn Kjartansson skrifar 3. mars 2015 16:49 Var handtekinn á vettvangi árásarinnar með blóð á fötunum. Vísir/GVA
Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem grunaður er um aðild að sérstaklega alvarlega líkamsárás. Maðurinn fannst bak við hurð í íbúð í sama húsi og árásin átti sér stað en bróðir mannsins var handtekinn vegna sama máls. Í greinargerð lögreglunnar segir að aðfaranótt 26. febrúar hafi verið óskað eftir aðstoð lögreglu í Reykjavík vegna hnífstungu. Í tilkynningunni kom fram að á staðnum væru menn vopnaðir skotvopnum. Þegar lögregla kom á staðinn kom hún að blóðugum manni sitjandi í sófa og að annar maður hafi staðið yfir honum með hníf. Sá sagðist aðeins vera að hjálpa og að þeir sem hefðu ráðist á manninn væru farnir. Fórnarlambið sagði hinsvegar manninn hafa ráðist á sig og var hann í kjölfarið handtekinn. Við skoðun hafi komið í ljós að maðurinn hafi verið blóðugur á höndunum og að hann hafi verið með tómt hnífahulstur í belti Bróðir þess sem handtekinn var, sá er kærði gæsluvarðhaldsúrskurðinn, fannst svo bak við hurð í annari íbúð í húsinu en fatnaður hans var blóðugur. Hann var handtekinn í kjölfarið. Lögreglan segist hafa gert tilraun til að yfirheyra hann daginn eftir, án árangurs vegna ástands mannsins. Samkvæmt áverkavottorði fórnarlambs árásarinnar var hann nefbrotinn og mikið skorinn í andliti. Hann var meðal annars með 18 cm langan skurð í andlitinu.
Mest lesið Lögregla klippti á plöturnar Innlent Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Innlent Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Erlent Bílvelta austan við Hvalnes Innlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fleiri fréttir Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Sjá meira