Innlent

Líf hjá ungviðinu í Húsdýragarðinum

Nýfædda lambið fær blíðar móttökur hjá börnunum á leikskólanum Laugasól.
Nýfædda lambið fær blíðar móttökur hjá börnunum á leikskólanum Laugasól. Fréttablaðið/Pjetur
Þessa dagana er mikið um að vera í Húsdýragarðinum þar sem sauðburður stendur sem hæst. Einnig eru komnir litlir kiðlingar, grísir og kanínuungar. Jón Gíslason, yfirdýrahirðir Húsdýragarðsins, sagði okkur allt um nýja ungviðið í garðinum.

Hvað eru margir kiðlingar og lömb? Kiðlingarnir eru þrettán og af þeim eru tólf hafrar og ein huðna. Ætli lömbin verði ekki um níu. Svo eru hér fjórir litlir grísir og kanínuungar. Svo koma selkópar í byrjun júní.

Hvernig gengur það fyrir sig þegar þau eru að fæðast? Við erum allan daginn og næturvörður sem fylgist með á nóttunni. Þau eru fyrstu dagana ein með móður sinni.

Er alltaf einhver að hugsa um þau? Það eru alltaf næturverðir sem passa dýrin.

Fá dýrin nöfn? Nei, við höfum yfirleitt ekki nefnt þau nema þau sem eru alltaf hjá okkur.

Mega þau fara strax út eða verða þau að vera inni? Þau fara út á hverjum degi og núna eru allar geiturnar komnar saman í einn hóp og kiðlingarnir eru að skoppa um. Það er mikið líf og fjör hjá okkur núna og þetta er alltaf frábær árstími, vorið.

Hvað borða dýrin? Þau fá eins mikið hey og þau geta étið en við gefum þeim líka fóður frá okkur svo mæðurnar mjólki vel. Og þegar er komið nóg gras úti þá bíta þau grasið þegar þau eru úti yfir daginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×