Fokk ofbeldi Stefán Árni Pálsson skrifar 6. febrúar 2015 13:37 "Árið sem konur eru frjálsar og lifa án ótta við ofbeldi,“ segir í tilkynningunni. vísir
UN Women á Íslandi kynnir í dag herferð sem kallast Fokk ofbeldi armbandið sem er ætlað að vekja fólk til vitundar um útbreiddasta mannréttindabrot í heiminum í dag: kynbundið ofbeldi. Fleiri konur deyja eða tapa heilsu á hverju ári vegna ofbeldis heldur en vegna krabbameins, umferðaslysa, malaríu og alnæmis ár hvert. Þetta kemur fram í tilkynningu frá UN Women. UN Women vinnur alla daga ötullega að því að breyta þessu og nú er byltingin er hafin. „Krefjumst þess að árið 2015 verði ár breytinga. Árið sem konur eru frjálsar og lifa án ótta við ofbeldi,“ segir í tilkynningunni. UN Women er eina stofnun Sameinuðu þjóðanna sem vinnur eingöngu að auknu kynjajafnrétti. Starf UN Women er eingöngu byggt á frjálsum fjárframlögum aðildarríkja SÞ, einkaaðilum og frá frjálsum félagasamtökum og því skiptir hver króna máli. Landsmenn geta tekið þátt í byltingunni með því að kaupa Fokk ofbeldi armbandið. Ágóði armbandanna rennur í Styrktarsjóð SÞ til afnáms ofbeldis gegn konum. Sjóðurinn styrkir um 80 verkefni í 70 löndum um þessar mundir og hefur bein áhrif á líf þriggja milljóna manna. Það er ósk UN Women á Íslandi að armbandið fái fólk til að tala um ofbeldi gegn konum. Með aukinni vitund eiga breytingar sér stað.Af hverju „Fokk ofbeldi“? Fokk ofbeldi armbandið er ætlað fullorðnum. Orðalagið er vísvitandi ögrandi og ætlað að hreyfa við fólki og stuðla að vitundarvakningu um baráttu gegn kynbundnu ofbeldi. Ef orðalagið fer fyrir brjóstið á fólki þá er mikilvægt að muna að ein af hverjum þremur konum verða fyrir ofbeldi á lífsleiðinni og 39 þúsund stúlkur eru þvingaðar í hjónaband á hverjum einasta degi eða ein á þriggja sekúndna fresti. Þetta mun aldrei breytast nema að við tökum höndum saman. Lyfja er styrktaraðili UN Women og sér um sölu á Fokk ofbeldi armbandinu sem fæst í Lyfju, Apótekinu og Heilsuhúsinu um land allt dagana 6.- 20.febrúar. Armbandið kostar 2.000 krónur.Staðreyndir um kynbundið ofbeldi • 600 milljónir kvenna búa í löndum þar sem heimilisofbeldi er ekki refsivert • 3.600 konum er nauðgað í Suður Afríku á hverjum einasta degi • Líklegra er að íslensk stúlka í 10.bekk á Íslandi hafi orðið fyrir kynferðislegri áreitni heldur en að hún reyki • 64 milljónir stúlkna undir 18 ára aldri hafa verið þvingaðar í hjónaband um heim allan. Það eru 39 þúsund stúlkur á hverjum einasta degi eða ein á þriggja sekúndna fresti. • 140 milljónir stúlkna hafa þurft að þola afskurð á kynfærum sínumUm herferðina „Fokk ofbeldi“UN Women á Íslandi hefur unnið náið með Kötlu Rós Völudóttir og Ragnari Má Nikulássyni í gegnum tíðina. Þau áttu hugmyndina að herferðinni: að fá nokkra dansara til að mynda í sameiningu orðin FOKK OFBELDI með líkömum sínum. Það er mikilvægt að sýna á táknrænan hátt hvernig vinna þarf sameiginlega gegn ofbeldi gegn konum og stúlkum. Í sameiningu mynda líkamarnir heild á tvo vegu; annars vegar mynda þeir tákn, orðin Fokk ofbeldi með líkömum sínum og hins vegar er sameining líkama þeirra tákn um þá sameinuðu krafta sem þarf til að gera okkur sterkari í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi. Saga Sig ljósmyndari myndaði dansflokkinn og er óhætt að segja að allir hafi skemmt sér stórvel í myndatökunni.Milljarður rís – Feminísk flóðbylgja um land alltUN Women á Íslandi vill ennfremur hvetja landsmenn til að mæta með Fokk ofbeldi armbandið á Milljarður rís föstudaginn 13. febrúar klukkan 12 í Hörpu, Hofi á Akureyri, félagsheimilinu Herðubreið á Seyðisfirði og Menntaskólanum á Ísafirði. Gefa ofbeldi fingurinn og dansa gegn kynbundnu ofbeldi!
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Sjá meira