Ætla að sexfalda fiskeldi í sjókvíum Óli Kristján Ármannsson skrifar 24. október 2015 07:00 Eldiskvíar í Patreksfirði þar sem Dýrfiskur og Fjarðalax hafa hug á að margfalda framleiðslu sína. Fyrirhuguð aukning nær einnig til eldis í Tálknafirði. vísir/pjetur
Til stendur að ríflega sexfalda eldi á laxi og regnbogasilungi hjá Fjarðalaxi og Dýrfiski í Patreksfirði og Tálknafirði. Auka á framleiðsluna um 16.000 tonn, úr 3.000 í 19.000 tonn. Til kynningar er hjá Skipulagsstofnun frummatsskýrsla fyrirtækjanna vegna mats á umhverfisáhrifum aukningarinnar, en frestur til að gera athugasemdir við hana rennur út 2. desember næstkomandi. Fram kemur í skýrslunni að fyrirtækin hafi undanfarin misseri unnið að uppbyggingu á lax- og silungseldi á Vestfjörðum og að áætlanir fyrirtækjanna geri ráð fyrir umtalsverðri framleiðsluaukningu á eldisfiski. „Það er liður í að styrkja núverandi starfsemi á Vestfjörðum og gera rekstur fyrirtækjanna arðbæran og samkeppnishæfan til lengri tíma,“ segir þar. Þá eru áform fyrirtækjanna sögð byggja á því að framleiðslan og afurðir fyrirtækjanna verði umhverfisvænar og framleiddar í sátt við vistkerfi framleiðslusvæða. „Niðurstaða umhverfismatsins er sú að fyrirhugað eldi í Tálknafirði og Patreksfirði mun hafa verulega jákvæð áhrif á hagræna og félagslega þætti,“ segir í niðurstöðum skýrslunnar. Aukin atvinna, verðmætasköpun og margfeldisáhrif af eldinu hafi nú þegar átt þátt í að snúa við íbúafækkun á svæðinu og búast megi við að frekari uppbygging leiði til enn jákvæðari þróunar. „Áhrif á aðra nýtingu verða óveruleg en að hluta til einnig talsvert jákvæð og að mestu leyti afturkræf.“ Vísað er til þess að umfangsmiklar mælingar á sjófræði fjarðanna bendi sterklega til þess að 20.000 tonna framleiðsla í fiskeldi hafi óveruleg áhrif á súrefnisinnihald sjávar og því lítil áhrif á lífríki fjarðanna, þó svo að áhrif úrgangsefna undir og næst eldiskvíum komi til með að hafa tímabundin neikvæð áhrif á vistkerfið á hafsbotni. Um leið kemur fram að sjúkdómasmit frá eldisfiski geti haft bein áhrif á villta laxfiskastofna, en komi til slíks smits séu áhrifin talin afturkræf. Þá myndu þau vera óveruleg þar sem búsvæði villtra laxfiska séu fjarri eldissvæðum og stærð villtra laxfiskastofna sé áætluð lítil í Patreks- og Tálknafirði. „Góð staða í sjúkdómamálum hérlendis og bólusetning eldisseiða styrkir þessa niðurstöðu.“ Og þótt eldissvæðin verði sýnileg víða í fjörðunum verði ekkert svæði fyrir verulegri breytingu á ásýnd eða ímynd. „Í heildina verða áhrif á landslag og ásýnd óveruleg og afturkræf.“
Mest lesið Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Innlent Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Innlent Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent „Sá spyr sem ekki veit“ Innlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Innlent Fleiri fréttir Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Rannsókn á andláti, kosningastyrkir án eftirlits og Ómar heiðraður Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda „Sá spyr sem ekki veit“ Tíu áfram í haldi grunaðir í tveimur stórfelldum málum Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Gæti tekið nokkrar vikur að vísa Bandero-liðum úr landi „Myndi hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti“ Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Banderofólki brottvísað og hinsegin dagar hafnir Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Barn í hoppukastala sem tókst á loft Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Sjá meira