Veiðiréttarhafar stefna ríkinu vegna dvínandi vatns í Grenlæk Garðar Örn Úlfarsson skrifar 9. janúar 2015 08:00 Veiðimenn hafa átt góðar stundir á vatnasvæði Grenlækjar en telja að nú hafi syrt í álinn. Mynd/Gunnar J. Óskarsson. „
Menn eru að segja upp veiðisvæðum og endurnýja ekki leiguna af því að það er svo miklu minni afli,“ segir Erlendur Björnsson, formaður Veiðifélags Grenlækjar. Veiðiréttarhafar við Grenlæk stefna ríkinu og Skaftárhreppi og vilja að dómstólar staðfesti skaðabótaskyldu þessara aðila vegna minnkandi veiði í ánni. Í stefnunni eru raktar ýmsar framkvæmdir allt frá því á sjötta áratug síðustu aldar sem breytt hafi vatnsrennsli. Meðal annars hafi stíflugarður verið lengdur um 110 metra á árunum 1992 til 1998. Vitnað er til skýrslu Veiðimálastofnunar frá árinu 1998: „Þær hamfarir, sem þurrkun Grenlækjar og Tungulækjar eru, hafa valdið stórkostlegri röskun á lífríkinu,“ sagði Veiðimálastofnun og benti á mikilvægi þess að vatni yrði aftur komið inn í lífríkið. „Það er forsenda þess að þeir árgangar sjóbirtings sem enn eru til nái að halda velli, að öðrum kosti er hætt við að þessi stofn verði fyrir varanlegum skaða eða líði undir lok.“ Fram kemur að árlegar leigutekjur af veiðiréttinum hafi verið 20 til 23 milljónir króna upp úr aldamótum en að miðað við ástandið telji matsmennirnir að leigutekjurnar verði sex til átta milljónir á næstu árum. Eftir að matsgerðin lá fyrir segir í stefnunni að Vegagerðin hafi neitað bótaskyldu eins og umhverfisráðuneytið, sem hafi hins vegar ítrekað boðað að jákvæðra tíðinda væri að vænta frá vinnuhópnum Skaftárnefnd. „Ekkert bólar hins vegar á slíkum tíðindum,“ segir í stefnunni sem veiðiréttarhafar segja sig nú nauðbeygða til að leggja fram.Matsmenn segja að árlegar tekjur af leigu veiðiréttinda í Grenlæk stefni í að verða sex til átta milljónir miðað við 20 til 23 milljónir upp úr síðustu aldamótum.Fréttablaðið/Garðar Örn ÚlfarssonGarðurinn frá 1992 og rör sem takmörkuðu vatnsflæði voru fjarlægð sumarið 1998. Ríkisstjórnin samþykkti hins vegar vorið 1999 að setja fjármagn til framkvæmda við útfall Árkvísla. Skipulagsstofnun hafnaði kröfu veiðiréttarhafa um umhverfismat því að um væri að ræða fjögurra ára tilraunaverkefni til að meta hvort stýra ætti rennsli á vatni úr Skaftá út á Eldhraun til frambúðar. Skaftárhreppur tók framkvæmdina að sér. Veiðiréttareigendurnir segja að á þessu fjögurra ára tilraunatímabili virðist sem engin vöktun hafi verið á svæðinu sem þó hafi verið skilyrði sveitarfélagsins sjálfs fyrir framkvæmdaleyfi. „Þá virðast engar rannsóknir hafa verið framkvæmdar um áhrif þess að vatni væri stýrt á þennan hátt,“ segir í stefnunni. Að því er segir í stefnunni hafa landeigendur og veiðiréttarhafar frá árinu 2005 ítrekað en árangurslaust beðið um aðgerðir til að bæta vatnsbúskapinn í Grenlæk. Þáverandi eigandi jarðarinnar Skálar hafi í nokkur ár fram til ársins 2012 veitt vatni á hraunið en nýr eigandi Skálar hafi ekki haldið því áfram. Haustið 2012 óskaði Veiðifélag Grenlækjar eftir því að matsmenn yrðu fengnir til að staðreyna hvort framkvæmdir á vegum opinberra aðila hefðu valdið tjóni á lífríki Grenlækjar og meta umfang tjónsins fyrir veiðiréttarhafa. Sumarið 2013 lengdi Vegagerðin varnargarð ofan þjóðvegar frá Bresti að afleggjaranum að Skál. Erlendur Björnsson skrifaði þá bréf fyrir hönd veiðifélagsins til Vegagerðarinnar og gerði athugasemdir og lýsti ábyrgð á hendur Vegagerðinni. „Engin viðbrögð bárust við bréfinu,“ segir í stefnunni. Niðurstaða matsmannanna tveggja lá fyrir í september 2013. „Niðurstaða matsgerðarinnar er í meginatriðum sú að mannlegar athafnir, sérstaklega bygging varnargarða á vegum opinberra aðila, hafi dregið úr náttúrulegu áflæði Skaftár á Eldhraunið og þar af leiðandi á rennsli í Grenlæk. Bleikju- og urriðaveiði hafi dregist saman á síðustu árum, líklega vegna staðbundinna orsakavalda, til dæmis vatnsrennslis og að veiðiréttarhafar hafi vegna þessa orðið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna tapaðra leigutekna,“ segir í stefnunni.
Mest lesið Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ Innlent Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Erlent Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Innlent „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Innlent Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Innlent Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Innlent Fleiri fréttir Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Sjá meira