Bætt raforkuöryggi á Vestfjörðum er forgangsmál Stefán Árni Pálsson skrifar 9. janúar 2015 13:00 Á síðustu misserum hefur verið ráðist í ýmsar framkvæmdir til uppbyggingar flutnings- og dreifikerfis raforku á Vestfjörðum.
Bætt raforkuöryggi á Vestfjörðum er forgangsmál og sérstakur starfshópur iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur það hlutverk að meta leiðir til að bæta þar um hefur skilað árlegri skýrslu sinni um raforkuöryggi á Vestfjörðum. Í skýrslunni er ítarleg umfjöllun um styrkingu flutnings- og dreifikerfisins á Vestfjörðum ásamt möguleikum á uppbyggingu virkjanakosta í héraði. Fram kemur í skýrslunni að almennt hafi bilunum á línum á Vestfjörðum farið fækkandi síðan 2009. Á síðustu misserum hefur verið ráðist í ýmsar framkvæmdir til uppbyggingar flutnings- og dreifikerfis raforku á Vestfjörðum. Endurbætur voru gerðar á Mjólkár-, Tálknafjarðar-, Bolungarvíkur- og Breiðadalslínum á árinu. Í skýrslunni kemur fram að minna afhendingaröryggi raforku á Vestfjörðum megi rekja til ótryggrar geislatengingar við flutningskerfið ásamt hærri bilanatíðni og lengri viðgerðartíma loftlína á svæðinu. Síðustu tveir vetur voru óvenju harðir og voru sjö tilvik ofsaveðurs á Vestfjörðum, með tilheyrandi röskun í raforkukerfinu. Í umfjöllun um framtíðarmöguleika á svæðinu er m.a. fjallað um þá möguleika sem opnast með nýjum Dýrafjarðargöngum en með þeim skapast skilyrði fyrir endurbótum á flutningskerfinu frá Mjólká að Breiðadal í Önundarfirði. Nauðsynlegt er að vinna áfram að nýrri 66 kV hringtengingu fyrir sunnanverða Vestfirði. Endurnýja þarf aðveitustöðina í Breiðadal. Orkukostir sem eru til skoðunar á Vestfjörðum, eru stækkun Mjólkárvirkjunar, 2 MW vindorkuver og varmadælur fyrir kyndistöðvar. Glámuvirkjun í núverandi mynd verður ekki tekin fyrir í rammaáætlun vegna áhrifa á friðun í Vatnsfirði. Því er tillaga starfshópsins að fara í skoðun á minni og öðruvísi virkjanakostum á Glámuhálendinu. Hvalárvirkjun er komin í nýtingarflokk rammaáætlunar og framkvæmdaaðilar eru búnir að semja um vatnsréttindi.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira