Í sumum sveitum er hrun í fjölda barna sveinn arnarsson skrifar 27. janúar 2015 07:00 Í hagvísi fyrir Vesturland með yfirskriftina "Börn í sveitum á Vesturlandi“ er varpað ljósi á byggðaþróun og barnafjölda í sveitum á Vesturlandi og gögnin borin saman við önnur svæði á landinu. Nordicphotos/Getty
Börnum fækkar um 42 prósent í sveitum á Vesturlandi á tímabilinu frá 1998 til 2014 á meðan fullorðnum fækkaði aðeins um 6,6 prósent. Í öðrum landshlutum fækkar börnum í sveitum um 25 til 50 prósent, mest á Vestfjörðum. „Þetta er þróun sem við erum að sjá og erfitt er að sjá hvernig við getum spyrnt við fótum,“ segir Vífill Karlsson, dósent við Háskólann á Akureyri og ráðgjafi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.Vífill KarlssonÍ hagvísi fyrir Vesturland sem ber yfirskriftina „Börn í sveitum á Vesturlandi“, er varpað ljósi á byggðaþróun í sveitum á Vesturlandi með tilliti til barna og borið saman við önnur svæði. Þar kemur fram að á meðan börnum fækkar til sveita alls staðar á landinu um allt að helming á sumum svæðum fjölgar börnum um þrjú prósent á landinu öllu. „Það sem við erum einnig að sjá er að Ísland kemur einna verst út hvað varðar fækkun barna þegar þróunin er borin saman við önnur Norðurlandanna. Þar erum við miklir eftirbátar,“ segir Vífill. Hér á landi hefur þróunin verið á þá leið að þéttbýli á suðvesturhorni landsins vex hratt og þróunin þar er hröð á meðan samfélag sveitanna þróast mun hægar. Langflestir þéttbýlisstaðir landsins búa við fólksfjölgun og fjölgaði íbúum landsbyggðanna um 0,7 prósent á síðasta ári. Hins vegar hafa sveitir landsins átt undir högg að sækja síðustu áratugi og á meðan nýliðun er lítil í bændastétt og meðalaldur íslenskra bænda hækkar er sagt líklegt að þessi þróun haldi eitthvað áfram. „Þróunin felur í sér miklar áskoranir fyrir íslenskt samfélag. Þróunin er ískyggileg víða til sveita. Um leið tekur hlutverk sveitanna miklum stakkaskiptum í íslensku atvinnulífi og jafnvel útlit fyrir tækifæri í framtíðinni. Enn fremur eru sveitirnar félagslega mikilvægar til að viðhalda ákveðinni fjölbreytni í landinu. Það er því mikilvægt að huga að því hvort slá megi á þessa þróun eða snúa henni jafnvel við,“ segir Vífill.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira