Skuldahvetjandi markaður kristjkana björg guðbrandsdóttir skrifar 5. febrúar 2015 07:30 Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, ræddi um slæma stöðu á húsnæðismarkaði á Alþingi í gær. Fréttablaðið/Vilhelm „
Ég held að við höfum sofið fljótandi að feigðarósi í þessum málaflokki,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, á Alþingi í gær í sérstökum umræðum um ungt fólk og fyrstu íbúðarkaup þess. Guðlaugur Þór hefur áhyggjur af því að það sé snúið mál fyrir ungt fólk að kaupa sér íbúð núna í skuldhvetjandi kerfi. „Við þurfum að breyta um stefnu, við getum ekki haft fyrirkomulag sem hvetur fólk til að skulda,“ sagði hann. Eygló Harðardóttir, félags -og húsnæðismálaráðherra, svaraði Guðlaugi Þór og sagðist sammála þingmanninum í því að það þyrfti að breyta um stefnu og það þyrfti að horfa á kerfið í heild sinni. Hún rifjaði það upp að Íslendingar hefðu lengi verið Evrópumeistarar í vanskilum húsnæðislána. „Við Íslendingar höfum verið Evrópumeistarar í vanskilum húsnæðislána, ekki bara eftir hrun heldur langt aftur í tímann. Við höfðum sem sagt vermt efstu sætin í vanskilum Evrópu um nokkurt skeið,“ sagði Eygló. Hún benti einnig á að erlendis væri fólk eldra þegar það keypti sér húsnæði og sagði nauðsyn að ná niður húsnæðiskostnaði á leigumarkaði og tryggja hagkvæmara skattaumhverfi fyrir leigufélög. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, reiknaði það út að ef foreldrar ætluðu sér að aðstoða barn sitt með útborgun í íbúð þyrftu þeir að leggja fyrir rúmlega 20 þúsund krónur á mánuði alla æsku barnsins, í 216 mánuði. Samtals fimm milljónir króna.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Sjá meira