Innlent

Sýna yfir helming verka en fá aðeins brot fjárins

Sveinn Arnarsson skrifar
Sviðslistir hafa skilað þjóðarbúinu miklum tekjum síðustu ár. Atvinnuleikurum við sjálfstæð leikhús hefur fjölgað mikið síðustu ár.
Sviðslistir hafa skilað þjóðarbúinu miklum tekjum síðustu ár. Atvinnuleikurum við sjálfstæð leikhús hefur fjölgað mikið síðustu ár. Fréttablaðið/Pjetur
Sjálfstæðu leikhúsin telja ekki jafnræðis gætt milli stóru leikhúsanna og sjálfstæðu leikhúsanna vítt og breitt um landið. Sjálfstæðu leikhúsin fá aðeins brot af þeim fjármunum sem stóru leikhúsin fá á fjárlögum ár hvert. Hafa þau óskað eftir að framlag til atvinnuleikhópa hækki um 36 prósent í næstu fjárlögum.

Bandalag sjálfstæðra leikhúsa er samtök sjálfstætt starfandi atvinnufólks í sviðslistum. Hafa samtökin sent inn umsögn um fjárlagafrumvarpið til allsherjar- og menntamálanefndar. „Til marks um gæði sýninganna er vert að geta þess að síðastliðið leikár hlutu hópar innan SL helming allra tilnefninga til Grímunnar,“ segir í umsögn samtakanna.

„Það er réttlætismál fyrir okkur sjálfstæðu leikhúsin að stærri hluti af fjármagni hins opinbera til sviðslista renni til sjálfstæðu leikhúsanna sem eru að gera mjög góða hluti. Nú er svo komið að sjálfstæðu leikhúsin frumsýna yfir helming allra verka á Íslandi á hverju ári og fá til sín þrjátíu prósent allra gesta en einungis átta prósent fjármagnsins sem rennur til sviðslista, það finnst okkur of lítill hluti af kökunni,“ segir Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri sjálfstæðu leikhúsanna.

Rakel Garðarsdóttir, framleiðandi hjá Vesturport
Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, sagði nú unnið í því að taka saman umsagnir um fjárlagafrumvarpið og að ekki væri hægt á þessu stigi málsins að ræða einstakar umsagnir. „Þessi vinna er í meðförum nefndarinnar og við munum gefa okkur tíma í að fara yfir þær umsagnir sem berast,“ segir Vigdís Hauksdóttir.

Sjálfstæðu leikhúsin telja lykil­atriði að bæta rekstrarumhverfi sviðslistahópa, meðal annars með því að úthlutunum til sviðslista á Íslandi verði safnað saman á einn stað. Ekki hefur náðst það markmið að fjárframlög til sjálfstæðrar atvinnustarfsemi í leiklist séu í samræmi við styrkveitingar stofnanaleikhúsa eins og sjálfstæðu leikhúsin hafa viljað síðustu ár.

Rakel Garðarsdóttir, framleiðandi hjá Vesturporti, segir sjálfstæðu leikhúsin ekki fá þá viðurkenningu sem þau eiga skilið. „Íslenskar sviðslistir hafa á síðustu árum skapað miklar útflutningstekjur fyrir þjóðarbúið. Við Hjá Vesturporti höfum flutt út leikverk og hugvit síðustu ár og hefur gengið mjög vel. Það væri óskandi ef sjálfstæðu leikhúsin fengju meiri hjálp frá hinu opinbera en raun ber vitni,“ segir Rakel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×