Kirkjuþing vill afnema samviskufrelsi presta Samúel Karl Ólason skrifar 29. október 2015 11:59 Frá kirkiuþingi. Vísir/GVA
Á nýloknu kirkjuþingi var álykað að kirkjan ætti að afnema samviskufrelsi presta og að meðlimir þjóðkirkjunnar ættu að taka vel á móti nýjum Íslendingum. Kirkjuþinginu lauk í gær eftir „líflegar og opinskáar umræður“. Kirkjuþing hefur ályktað að prestum þjóðkirkjunnar ætti ekki að vera heimilt að synja tveimur einstaklingum um hjónavígslu á grundvelli kynhneigðar. „Kirkjuþing tók undir með biskupi Íslands sem áður hafði tekið af öll tvímæli um þetta í bréfi sínu til ráðherra. Þar kom m.a. fram að biskup myndi ekki gera tillögu til ráðherra um sérstakar reglur er heimili prestum að synja fólki um hjónavígslu á grundvelli kynhneigðar,“ segir í tilkynningu frá Biskupsstofu. „Með samþykkt kirkjuþings er undirstrikað að kirkjan er fyrst og fremst farvegur kærleika Krists og fagnar lífinu í öllum sínum fjölbreytileika.“ Kirkjuþing samþykkti einnig sáttmála sem beint er til sókna þjóðkirkjunnar. Þar segir meðal annars:Við í sókninni viljum hjálpast að til að taka vel á móti nýjum Íslendingum með því að:Hafa eyru og hjörtu opin fyrir reynslu og líðan þeirra sem koma hingað frá öðrum löndum og reyna að fóta sig í nýju landi.Sýna gestrisni og skilning á ólíkum aðstæðum fólks.Taka sérstaklega vel á móti börnum og ungmennum sem eru ný í landinu.Virða þá staðreynd að nýir Íslendingar geta haft annan trúarlegan og menningarlegan bakgrunn en flestir sem búa hér.Iðka okkar eigin trú án þess að gera lítið úr öðrum trúarbrögðum eða þeim sem aðhyllast þau.Vera talsmenn þeirra sem hafa ekki rödd í samfélaginu, tala vel um nýja Íslendinga og taka ekki undir fordóma og illt umtal um þá, t.d. á samfélagsmiðlum.Vera opin fyrir samstarfi við önnur félagasamtök og stofnanir sem vinna í þágu betra samfélags.Byggja á reynslu stofnana á borð við Velferðarráðuneytið, Rauða krossinn og Hjálparstarf kirkjunnar sem hafa gefið út viðmið og leiðbeiningar um móttöku flóttafólks og hælisleitenda.
Mest lesið Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Innlent Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Innlent Ítrekað hjólað á móti umferð Innlent Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Innlent Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Innlent Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Erlent „Hverjir eru á bak við það?“ Erlent Fleiri fréttir Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Sjá meira