Glampandi fagur kontrabassi í glugga Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 6. ágúst 2015 09:00 Jón Karl og Tómas hafa þekkst í fjöldamörg ár og fara reglulega saman í sund. Vísir/AndriMarinó
Heimildarmyndin Latínbóndinn var frumsýnd á heimildamyndahátíðinni Skjaldborg sem fram fór á Patreksfirði í lok maí. Á þriðjudaginn verður myndin svo sýnd í Bíó Paradís. Í myndinni gefst áhorfendum kostur á því að kynnast bassaleikaranum, lagahöfundinum og þýðandanum Tómasi R. Einarssyni.Latíntónlist í farteskinu „Við byrjuðum á þessu verkefni árið 2009 og sóttum um handritastyrk frá Kvikmyndasjóði og fengum hann,“ segir Jón Karl Helgason, leikstjóri myndarinnar, sem sjálfur hefur þekkt Tómas í fjöldamörg ár og hittast þeir reglulega í sundi. „Það þróaðist í þessa átt að myndin fjallaði um það að Tómas væri að koma í sveitina aftur með latíntónlistina með sér,“ segir Jón Karl en í henni er Tómasi fylgt eftir frá Havana á Kúbu og í heimahagana í Búðardal með latíntónlist í farteskinu og er um eins konar tónlistarævisögu að ræða.„Ég ólst upp í Dölunum og mig hafði lengi dreymt um að fara með stóra hljómsveit vestur og bjóða Dalamönnum á tónleika. Ég fékk nokkra gamla og góða vini mína fyrir vestan til að ganga í lið með mér og kynna tónleikana."Tómas R. Einarsson – Latínbóndinn Í myndinni er nánast aðeins leikin latíntónlist en Tómas hefur samið ógrynni af tónlist í gegnum tíðina frá því hans fyrsta útsetning birtist árið 1982 og fyrstu latínplötuna gerði hann árið 2002.Hér sést Tómas í myndinni Latínbóndinn á slóðum forfeðra sinna.Mynd/JónKarlFyrsti kontrabassinn „Hann heillaði mann alveg upp úr skónum frá upphafi, það var auðvelt að vinna með honum,“ segir Jón Karl en líkt og áður sagði hefur undirbúningur og gerð myndarinnar staðið yfir frá árinu 2009 og segir Jón alla aðstandendur hennar hafa lagt áherslu á að vanda öll vinnubrögð. Myndin segir frá ferðalagi Tómasar, frá því hann er ungur í Hvammssveit í Dölum, þegar hann byrjaði að spila á gítar og kynnist kontrabassanum þegar hann sér kontrabassaleikarann Niels-Henning Örsted Pedersen ásamt tríói í fyrsta sinn árið 1978, hvernig það kveikti áhugann og hvernig það kom til að hann fjárfesti sjálfur í kontrabassa, ferðalagi Tómasar úr sveitinni alla leið til Kúbu þar sem hann tók upp tónlist ásamt heimamönnum, latíntónleikum á heimaslóðum og hvernig tónlistin varð bjargvættur við sáran ástvinamissi. „Svo var ég staddur úti í Ósló sumarið 1979 – búinn að græða fullt af peningum með því að binda járn á olíuborpöllum fyrir utan Stavanger. Og ég er staddur í miðbænum í Ósló í ágúst á heitum degi og geng fram hjá búð – hljóðfæraverslun, og þar stendur kontrabassi – glampandi fagur – splunkunýr og ég fór inn og keypti hann."Tómas R. Einarsson – LatínbóndinnMikill sögumaður „Hann er svo mikill sögumaður, þetta eru svo fallegar sögur og þetta er svo einlægt,“ segir Jón Karl, sem einnig klippir myndina en í henni eru engar beinar viðtalsupptökur af Tómasi að tala við myndavélina heldur segir hann sögu sína yfir ýmiss konar myndefni, bæði frá tímanum sem hann eyddi á Kúbu og ferð hans heim í sveitina þar sem hann lék latíntónlist fyrir sveitungana. Á tónleikunum, sem fram fóru í Dalabúð árið 2014, lék fjöldi landsþekktra tónlistarmanna með Tómasi, til dæmis má nefna Sigtrygg Baldursson, Davíð Þór Jónsson, Kjartan Hákonarson, Matthías MD Hemstock, Ómar Guðjónsson, Óskar Guðjónsson, Samúel Jón Samúelsson og Sigríði Thorlacius. Tökuliðið fylgdi Tómasi að sjálfsögðu eftir og eru tónleikunum gerð skil í myndinni.Myndin segir frá tónlistarferðalagi og er Tómasi fylgt eftir frá Havana til Búðardals, með viðkomu í Vesturbæjarlauginni.Mynd/JónKarlFélagi í 35 ár „Hann fyllti salinn og það var alveg áberandi þegar maður horfir á myndina að fólki þykir gaman og verður stolt af sveitunga sínum sem kemur með svona frábæra hljómsveit og fyllir staðinn,“ segir Jón Karl og bætir við að talsvert hafi verið dansað á tónleikunum.„Kontrabassinn hefur verið félagi minn í 35 ár. Við kynntumst fyrir tilviljun. Hann var dálítið seintekinn og ég þurfti að vera lengi með honum áður en ég kynntist honum vel. En ég hef líka getað trúað honum fyrir ansi mörgu sem ég átti erfitt með að koma í orð."Tómas R. Einarsson – Latínbóndinn Handritshöfundur myndarinnar er Sveinbjörn I. Baldvinsson, framleiðandi Sigurður G. Valgeirsson, framkvæmdastjóri Jóna Finnsdóttir og um leikstjórn, kvikmyndatöku og klippingu sá Jón Karl Helgason. Myndin verður sýnd í Bíó Paradís klukkan 18.00 og markar upphaf Jazzhátíðar Reykjavíkur sem fer fram 12. til 16. ágúst.
Bíó og sjónvarp Tónlist Mest lesið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Sögulegt parhús í Hlíðunum Lífið Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið Fleiri fréttir Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Sjá meira