Fyrsti sushi-vagninn á Íslandi Gunnar Leó Pálsson skrifar 30. júlí 2015 10:00 Sushi vagninn opnar í Mæðragarði í dag. „
Þetta er allavega fyrsti svona vagninn sem ég veit um hér á landi og við erum mjög spennt,“ segir Hulda Björg Jónsdóttir. Hún opnar í dag ásamt sambýlismanni sínum, Arnþóri Stefánssyni, fyrsta sushi-vagn landsins og ber hann nafnið Shirokuma Sushi. Þau vilja gera sushi aðgengilegra fyrir fólk og vilja breyta markaðnum. „Við höfum gengið með þessa hugmynd í einhvern tíma en í haust fórum við að spá í þessu af einhverju viti. Okkur langar að sprengja upp markaðinn með okkar frábæra verði, við viljum að fólki geti fengið sér sushi oftar en bara á hátíðisdögunum, því þetta hefur verið svo dýrt hérna,“ útskýrir Hulda Björg. Á bak við sushi-ið standa Arnþór, sambýlismaður Huldu, og Lúðvík Þór Leósson, en þeir eru þaulreyndir í sushi-gerð. Arnþór er menntaður matreiðslumaður frá Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi, ásamt því að hafa starfað á fjölda virtra veitingastaða hérlendis eins og t.d. Vox, Turninum 19. hæð, Suzushii, Sushisamba og Sushibarnum. Lúðvík hefur starfað við sushi-gerð frá árinu 2010 á Suzushii, Sushibarnum/Sakebarnum. Þeir félagar sáu um að reka Suzushii í Kringlunni árin 2011-2015.Shirokuma Sushi-vagninn verður opnaður í Mæðragarði við Lækjargötu í dag en þess má til gamans geta shirokuma þýðir ísbjörn á japönsku.
Mest lesið Eyðir afmælisdegi dótturinnar í fasteignadeilur Lífið Skúli hannaði hof fyrir Grímu Lífið Eini dagurinn sem hægt er að fara upp í Gróttuvita Lífið Krakkatía vikunnar: Menning, bangsar og líffæri Lífið Veggjadans á Hörpu og snyrtivörur úr sælgæti Lífið Serena Williams opnar sig um notkun þyngdarstjórnunarlyfja Lífið Bjargaði lífi systur sinnar ellefu ára gömul Lífið Kynferðisleg gremja, sænskur senuþjófur og náttúruklám Gagnrýni Woody Allen aðalnúmerið hjá Rússum Bíó og sjónvarp Níu ástæður fyrir því að stunda morgunkynlíf Lífið Fleiri fréttir Skúli hannaði hof fyrir Grímu Eyðir afmælisdegi dótturinnar í fasteignadeilur Eini dagurinn sem hægt er að fara upp í Gróttuvita Krakkatía vikunnar: Menning, bangsar og líffæri Veggjadans á Hörpu og snyrtivörur úr sælgæti Miklar tilfinningar og mikil stemning í Reykjavíkurmaraþoninu Serena Williams opnar sig um notkun þyngdarstjórnunarlyfja Fréttatía vikunnar: Svíþjóð, sektir og vextir Bjargaði lífi systur sinnar ellefu ára gömul Níu ástæður fyrir því að stunda morgunkynlíf Bragðgóðar kalkúnabollur í kókos og límónusósu Hörður Björgvin kom Móeiði á óvart HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Ari og Helga Lilja flytja á milli glæsihúsa í Garðabæ Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Innlit í nýtt svefnhólfahótel við Hverfisgötu Millie Bobby Brown og Bongiovi hafa ættleitt stúlku Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Þungarokkstjarna lést í mótorhjólaslysi Lil Nas X handtekinn og vistaður á sjúkrahúsi Fjögurra daga Njáluhátíð sett á Hvolsvelli í kvöld Tvö maraþon eftir af sex: Úr þoku í sól, misörlátir ferðamenn og hálendið kvatt „Sjúllaður“ sítrónu og jarðaberja næturgrautur Draumadís Þórhildar og Hjalta komin í heiminn Svona verður dagskráin á Menningarnótt Breskur auðkýfingur brjálaður og norsku kafararnir of dýrir Nafn sonarins innblásið af Frakklandi Súrrealískt þegar Jay Leno vinkaði fjölskyldunni á Facetime Borgarstjóri fagnaði brúðkaupsafmæli með strætóferð og indverskum mat Svarar samskiptastjóra Trump sem kallaði hann lúser Sjá meira