Ástfangnir af föngum þótt reglur banni það Nadine Guðrún Yaghi skrifar 28. júlí 2015 07:00 Páll Winkel segir að yfirleitt gruni samstarfsfólk að fangavörður og fangi eigi í ástarsambandi ef sú er raunin. vísir/E. Ól „
Því miður kemur þetta upp annað slagið og við lítum þetta mjög alvarlegum augum. Yfirleitt er um að ræða fangaverði sem starfa við afleysingar,“ segir Páll Winkel fangelsismálastjóri um ástarsambönd fanga og fangavarða. Nýlega kom upp tilvik í fangelsinu að Sogni þar sem kvenkyns fangavörður og fangi urðu ástfangin. Fangavörðurinn var sumarstarfsmaður og eftir að störfum lauk lét hún fangelsisyfirvöld vita af því að hún myndi halda áfram að heimsækja fangann. Þau eru saman í dag.Páll Winkel„Það kom upp tilvik í fyrra. Hún vildi eiga áfram í samskiptum við fangann og við ráðum engu eftir að störfum lýkur,“ segir Páll. Hann segir að yfirleitt gruni samstarfsfólk að fangavörður og fangi eigi í ástarsambandi ef sú er raunin og þá sé gripið inn í um leið. „Í þessu tilviki grunaði engan neitt og þetta kom öllum á óvart.” Páll mætir á nýliðanámskeið sem Fangavarðaskólinn heldur ár hvert og brýnir fyrir nýliðum að persónulegt samband við fanga sé óheimilt. „Ég mæti til þess að ræða þetta og svo fara sálfræðingar yfir samskipti fangavarða og fanga. Við förum yfir tilvikin sem hafa komið upp og útskýrum að það sé á engan hátt í lagi,“ segir Páll og bætir við að yfirleitt komist upp um samböndin eftir að viðkomandi fangavörður er hættur störfum. „Það er erfitt að eiga við ástina og það er bara þannig að ungt fólk sem þekkir lítið til í þessum geira virðist sjá einhverja spennu í þessu, eins ótrúlega og það hljómar.“ Fangelsismálastofnun lítur persónulegt samband fanga og fangavarða alvarlegum augum og reynir eftir fremsta megni að koma í veg fyrir að samskiptin séu óviðeigandi. „Það er ekki viðeigandi að fangavörður eigi slík tengsl við skjólstæðing sinn.“ Margrét Frímannsdóttir, yfirmaður í fangelsinu að Litla-Hrauni, segir að ef starfsmaður og fangi verði of náin sé viðkomandi starfsmaður látinn víkja. „Það er brot og það samrýmist ekki þessu starfi,“ segir Margrét og bætir við að varðstjórar og aðstoðarvarðstjórar fylgist vel með því þegar nýtt starfsfólk hefur störf í fangelsinu. „Þeir fylgjast með hvort það sé minnsti grunur um óhefðbundin samskipti við fanga.“
Mest lesið Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Innlent Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Innlent Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Innlent Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Innlent Útihátíð fyrir ungmenni gekk eins og í sögu Innlent Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Erlent Bíll konunnar sást á upptöku Innlent „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Innlent „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Innlent Fleiri fréttir „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Útihátíð fyrir ungmenni gekk eins og í sögu Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Skoða að flýta aðgerðum í húsnæðismálum til að ná tökum á verðbólgunni „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Hraðbankinn ófundinn, hungursneyð og skólar hefjast Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Þurfa að bíða lengur eftir að komast í Sundhöllina Bíll konunnar sást á upptöku Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Líta málið „mjög alvarlegum augum“ Hella áfenginu niður og hringja í foreldra Tuttugu milljónir í bankanum og kona í gæsluvarðhaldi Rigning og rok í methlaupi Sleppt úr gæsluvarðhaldi en málið enn til rannsóknar Hlaup hafið úr Hafrafellslóni Hungursneyð lýst yfir og forsætisráðherra segir alþjóðasamfélagið ráðalaust Aðstoðar allt að fimmtán ára gömul börn að hætta með bleyju Hungursneið á Gasa, strokulaxar og metþátttaka í Reykjavíkurmaraþoni Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Áfall fyrir RIFF Skipar samningateymi um uppbyggingu Víkings á Markarsvæði Leituðu ítrekað í geymslur stofnunar Tillaga um að stækka Hótel Flatey felld Landsmenn allir harmi slegnir Sjá meira