Drykkja dregur úr ábyrgri kynhegðun Vera Einarsdóttir skrifar 28. júlí 2015 10:00 Sigurlaug mælir með því að fólk byrgi sig upp af smokkum fyrir verslunarmannahelgina, bæði fyrir sig og aðra sem eru ekki jafn fyrirhyggjusamir. MYND/ANDRI MARÍNÓ
Um 2.000 einstaklingar smitast af klamydíu á ári hverju eða sex á dag, flestir á aldrinum 15-25 ára. Herpes og kynfæravörtur eru enn algengari. Tölfræði yfir smokkanotkun kemur í því samhengi ekki á óvart en þar eru Íslendingar gjarnan eftirbátar annarra ríkja. En hver er skýringin? Er forvörnum ábótavant? Að mati Sigurlaugar Hauksdóttur, yfirfélagsráðgjafa hjá Embætti landlæknis, sem jafnframt starfar með HIV-jákvæðum á Landspítalanum er skýringanna meðal annars að leita í því hve snemma íslensk ungmenni byrja að stunda kynlíf og hve oft áfengi og önnur vímuefni eru höfð um hönd.Augnablik geta öllu breytt „Alltaf öðru hvoru kemur til mín fólk á ólíkum aldri sem segist vera vel upplýst um smitleiðir kynsjúkdóma. Það gleymdi sér hins vegar á ögurstundu meðal annars vegna neyslu áfengis eða vímuefna. Það þarf bara nokkrar mínútur til að breyta framtíðinni og geta þær því miður haft afdrifarík áhrif. Sumir kynsjúkdómar, eins og klamydía, geta til dæmis haft áhrif á getuna til að eignast börn og aðra sjúkdómar, eins og HIV, herpes og kynfæravörtur, situr fólk uppi með ævilangt.“Þarf að seinka fyrstu samförum En hvað er til ráða? „Það væri gott ef ungmennin okkar væru ekki að flýta sér um of við að byrja að stunda kynlíf því hver mánuður og ár getur skipt máli í auknum þroska á þessu sviði eins og öðrum. Samevrópskar rannsóknir hafa sýnt að íslenskar stúlkur byrja mun fyrr að stunda kynlíf en flestar kynsystur þeirra í Evrópu. Drengir eru hins vegar nær meðaltalinu. Aldur stúlkna er þó aðeins að hækka sem er afar jákvætt enda gerir aukinn þroski ungmennum frekar kleift að standa á sínu." Sigurlaug segir nefnilega mikilvægt að ungt fólk skipuleggi kynlífshegðun sína eins og svo margt annað í lífinu. „Við þurfum að taka ákvörðun um það fyrirfram hvort við ætlum í kynlífi okkar að taka áhættu með eigin heilsu og jafnvel heilsu annarra.“ Sigurlaug segir eðlilegt að margt fólk vilji prófa sig áfram í kynlífi á meðan það er ungt en samnorræn rannsókn á konum sýndi að Íslendingar áttu met í fjölda bólfélaga. „Við erum greinilega mjög frjálsleg sem hefur sína kosti og galla. Frelsinu þarf þó að fylgja ábyrgð ef fólk vill ekki sitja uppi með neikvæðar afleiðingar eins og kynsjúkdóm.“ Oft er talað um að líkur á smiti aukist með fjölda bólfélaga. Að sögn Sigurlaugar þarf svo alls ekki að vera. „Ef smokkurinn er notaður í hvert skipti sem kynlíf er stundað er það mun öruggara en ef notkun hans gleymist einu sinni.Þarf alltaf að vera áSmokkurinn er eins og margur veit eina vörnin gegn kynsjúkdómum. Sigurlaug segir þó skorta talsvert upp á að menn noti hann rétt. „Í fyrsta lagi verður að nota hann í hvert skipti, ekki bara oftast eða stundum. Þá þarf að fylgja leiðbeiningunum. Þegar menn kvarta undan því að smokkurinn rifni er það gjarnan vegna þess að hann er ekki rétt settur á. Jafnframt er mikilvægt að setja hann á typpið á réttum tíma, en ekki bara rétt fyrir sáðlát. Um leið og slímhúðir mætast er hætta á smiti,“ útskýrir Sigurlaug. En nú hefur oft verið uppi umræða um að hafa smokka ókeypis eða niðurgreidda. Hvernig stendur það mál? „Það hefur því miður ekki náðst í gegn og á meðan svo er er mikilvægt að láta ekki pirring yfir því verða til þess að tekin sé áhætta með eigin heilsu. Smokkar fást nú orðið mjög víða. Þeir kosta á við nammipoka eða bíóferð og ættu flestir að hafa ráð á því.“ Sigurlaug mælir með því að fólk byrgi sig vel upp af smokkum fyrir verslunarmannahelgina. „Bæði fyrir sig og aðra sem ekki eru jafn fyrirhyggjusamir.“ Smokkinn segir hún fyrsta stigs forvörn. „Ef hann af einhverjum ástæðum skyldi klikka er nauðsynlegt að taka næsta skref og fara á Húð- og kynsjúkdómadeild Landspítalans eða á heilsugæsluna og kanna hvort eitthvað hafi gerst. Ef við greinumst með sjúkdóm er hægt að lækna suma þeirra strax, aðrir, eins og HIV, þurfa ævilanga lyfjagjöf og eftirfylgni.“Flestir kynsjúkdómar einkennalausirSigurlaug leggur áherslu á að í flestum tilfellum finni fólk engin einkenni og er klamydía til að mynda einkennalaus í allt að 70 prósentum tilfella. „Það verður því alltaf að hugsa málið út frá eigin hegðun. Ef tekinn hefur verið séns þarf að athuga málið og því fyrr sem það er gert því betra, því margir kynsjúkdómar ágerast með tímanum.“ Sigurlaug bendir á að skoðun og meðferð við flestum kynsjúkdómum sé ókeypis til dæmis á „Húð og kyn“ á Landspítalanum og á heilsugæslustöðvum. Hún segir jafnframt ráð að fara í skoðun áður en tekin er ákvörðun um að stunda óvarið kynlíf. „Það er ekkert sem segir að fólk þurfi að nota smokka ævilangt. Par sem hefur tekið ákvörðun um að vera saman getur komið í sameiningu og kannað hvort ekki sé allt með felldu áður en smokknum er sleppt.“Ýmiss konar forvarnarstarfSigurlaug hefur unnið með HIV-jákvæðum á Íslandi frá árinu 1997 og lagt mikið af mörkum til hvers kyns forvarnarstarfs. Aðspurð segir hún sannarlega reynt að ná til ungmenna í grunn- og framhaldsskólum þótt auðvitað sé alltaf hægt að gera betur. „HIV-Ísland fer meðal annars inn í alla efri bekki grunnskóla og fræðir um kynsjúkdóma með áherslu á HIV. Ástráður, forvarnarhópur læknanema á öðru ári, fer svo inn í alla fyrstu bekki framhaldsskóla og efri bekki grunnskóla sé þess óskað. Þá hafa hjúkrunarfræðingar í grunnskólum búið til sérstakt námsefni sem þeir nýta til fræðslu. Auk þess eru félagasamtök eins og Samtökin 78 og Blátt áfram oft fengin til að tala við ungmenni. Þá hef ég ásamt Dagbjörtu Ásbjörnsdóttur og Guðbjörgu Eddu Hermannsdóttur verið með fræðsluna Tölum saman – samskipti foreldra og unglinga um kynlíf frá árinu 2002, en hún er fyrir 7.-10. bekkinga og foreldra þeirra. Ég sem starfsmaður hjá sóttvarnalækni hjá Embætti landlæknis er auk þess alltaf boðin og búin til að vera með fræðslu hvar og hvenær sem er.“
Mest lesið Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Lífið Sonurinn skírður Lífið Gylfi og Alexandra eiga von á barni Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Bernard Hill er látinn Lífið Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Lífið Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Lífið Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Lífið Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Tíska og hönnun Fleiri fréttir Sonurinn skírður Gylfi og Alexandra eiga von á barni Bernard Hill er látinn Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Tróð upp í Norræna partýinu Gaman að geta grætt fólk á góðan hátt Bakaríið í beinni Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Bakaríið í beinni Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Una Torfadóttir með sína útgáfu af Bubbalagi frá 1998 Hyggjast renna fimmtíu íslenskum lögum inn í karaokívélarnar Magnús Árni selur sögufrægt hús með kastalaturni „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“ Minningar um líf sem er að hverfa Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Tíu ár og aukin meðvitund í bransanum Hvetur fólk til þess að leika sér Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Sjá meira