Horft verði til menntunar og hæfni í stað lífaldurs fólks Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 6. júlí 2015 07:00 Aldursmunur þessara manna gæti skapað launamun óháð starfsreynslu.
Kristín ÓlafsdóttirVísir/Arnþór Í flestum kjarasamningum er það almenn regla að starfsaldur ákvarði laun og launaþrep. Í sumum kjarasamningum kemur fram að lífaldur einstaklinga skuli ákvarða hluta launa. Þar á meðal er kjarasamningur Starfsmannafélags Reykjavíkur við Reykjavíkurborg. Þar hefur lífaldur áhrif á launaþrep og aldursþrepin eru frá undir 20 ára aldri allt að 35 ára. Ákvæði um lífaldur eru ekki tiltekin eftir 35 ára aldur. „Ég sjálf hef fundið fyrir þessu,“ segir Kristín Ólafsdóttir, starfsmaður Reykjavíkurborgar. Hún vann síðasta sumar fyrir verkefnið Skyldurækin þar sem hún fræddi ungt fólk meðal annar um kjaramál. „Ég fékk sem sagt meira borgað en samstarfsfélagi minn af því að ég var tveimur árum eldri.“ Kristín segir að fáir krakkar hafi verið meðvitaðir um réttindi sín og nauðsynlegt sé að bæta fræðslu um kjaramál. „Þau voru mörg hver úti á túni þó það hafi verið misjafnt. Það þyrfti að koma þessu betur inn í skólanna, námskrána,“ segir hún. „Mér hefur alltaf fundist þetta skrítið. Að lífaldur trompi starfsaldur.“Inga Auðbjörg KristjánsdóttirInga Auðbjörg Kristjánsdóttir, formaður Landssambands æskulýðsfélaga, tekur undir að það sé ósanngjarnt að mismuna fólki eftir lífaldri. „Það þarf að meta menntun og hæfni einstaklinga til verðleika en ekki aldur, umbuna þér ef þú hefur reynslu á einhverju sviði en ekki eftir hversu marga hringi þú hefur farið í kringum sólina,“ segir hún. Inga nefnir fleiri dæmi um mismunun á vinnumarkaði og bendir á nýsamþykkta kjarasamninga þar sem átján og nítján ára einstaklingar þéna 95 prósent af byrjunarlaunum tvítugra einstaklinga. Í tilmælum Evrópusambandsins um bann við mismunun á vinnumarkaði er meðal annars tiltekið að bannað sé að mismuna eftir aldri hvað varðar aðgang að störfum, ráðningar, laun og fleira. Tilmælin hafa enn ekki verið innleidd á Íslandi en frumvarp um innleiðingu þeirra er tilbúið í félagsmálaráðuneytinu. Einungis á eftir að leggja það fram. Halldór Oddsson, lögfræðingur ASÍ, segir að tilskipunin muni ekki breyta ákvæðum um lífaldur. „Við tökum því mjög fagnandi að tilskipunin verði loksins leidd inn í lög og það er algerlega nauðsynlegt og það verður mikil réttarbót almennt. En varðandi lífaldurinn og 95 prósent regluna þá held ég að það breytist ekki,“ segir Halldór. „Auðvitað myndi maður vilja að allir hefðu sömu laun og góð laun. En lögfræðilega þá tel ég að þetta standist alveg skoðun. Ég held að það sé alveg margviðurkennt og hafi að einhverju leyti verið látið reyna á það, eins og fyrir Evrópudómstóli og fleira. Þau mál sem hafa fallið varðandi aldursmismunun hafi vanalega verið grófari tilvik.“
Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Tómas kominn aftur til starfa Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira