Þróa meðferð fyrir slasaða hermenn Bandaríkjahers Svavar Hávarðsson skrifar 1. maí 2015 11:45 Meðferð við skot- og sprengjuáverkum er viðfangsefni Kerecis. nordicphotos/afp
Ísfirska lækningavörufyrirtækið Kerecis hefur gert þróunarsamning við Rannsóknamiðstöð bandaríska sjóhersins (ONR) um að nýta vefjaviðgerðarefni fyrirtækisins úr þorskroði til meðhöndlunar á bráðaáverkum á alvarlega slösuðum hermönnum. Helst er um skot- og sprengjuáverka að ræða. Guðmundur Fertram Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Kerecis, segir upphæð samningsins vera trúnaðarmál en ONR hafi tæpa tvo milljarða króna til ráðstöfunar fyrir verkefnið. „Samningurinn er einnig háður því að Kerecis nái að sýna fram á ákveðin vísindaleg markmið en að því gefnu að við náum þeim markmiðum sem stefnt er að mun samningurinn færa fyrirtækinu verulegar tekjur á næstu árum,“ segir Guðmundur. Hann bætir við að öll vinna við verkefnið fari fram hjá Kerecis á Íslandi og hjá íslenskum og erlendum samstarfsaðilum. Hingað til hafa sárarannsóknir Kerecis aðallega snúið að sárum vegna sykursýki og öðrum þrálátum sárum sem eru alvarlegt heilbrigðisvandamál um heim allan. Með samningnum við ONR útvíkkar Kerecis rannsóknasvið sitt og vöruþróun yfir í úrræði til að meðhöndla bráðaáverka.Annar samningurinn við bandarísk varnarmálayfirvöld Baldur Tumi Baldursson, húðlæknir og læknisfræðilegur stjórnandi Kerecis, segir að undanfarin fimm ár hafi fyrirtækið byggt upp sterkan vísindalegan grunn fyrir sárameðhöndlunartækni fyrirtækisins þar sem einblínt hefur verið á meðhöndlun á þrálátum sárum, ekki síst vegna sykursýki. „Þetta verkefni útvíkkar þennan vísindalega grunn yfir í bráðasár með það að markmiði að fækka dauðsföllum vegna slíkra áverka,“ segir Baldur Tumi. Samningurinn sem nú er í hendi er annar samningurinn sem Kerecis gerir við bandarísk varnarmálayfirvöld en í fyrrahaust gerði fyrirtækið smærri samning við Sárarannsóknasetur bandaríska landhersins (INR). Sá samningur snýst um rannsóknir á tækni Kerecis til að meðhöndla alvarleg brunasár. Kerecis stefnir á að útvíkka enn samstarfið við bandarísk varnarmálayfirvöld á næstu misserum, en skrifstofa Kerecis í Washington DC, sem var opnuð fyrr á þessu ári, er liður í þeim áætlunum.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Sjá meira