Innlent

Tekjurnar duga ekki til að reka borgina

stefán rafn sigurbjörnsson skrifar
Borgarstjóri segir heildarniðurstöðu um rekstur ársins 2014 jákvæða. Heildarsamstæðan skilaði 11 milljarða króna hagnaði. Oddviti Sjálfstæðisflokksins telur málið alvarlegt og segir skatttekjur borgarinnar verða að duga fyrir rekstri hennar.
Borgarstjóri segir heildarniðurstöðu um rekstur ársins 2014 jákvæða. Heildarsamstæðan skilaði 11 milljarða króna hagnaði. Oddviti Sjálfstæðisflokksins telur málið alvarlegt og segir skatttekjur borgarinnar verða að duga fyrir rekstri hennar. vísir/stefán/daníel
„Heildarniðurstaðan er náttúrulega jákvæð um 11 milljarða,“ sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri um rekstrarniðurstöðu Reykjavíkur fyrir árið 2014.

„Þar vegur árangur Orkuveitunnar auðvitað þyngst. En kjarasamningar hafa tekið í reksturinn og við munum standa þá vakt á næstunni um hvernig verði hægt að fjármagna það,“ segir hann.

Í skýrslu fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar kemur fram að launahækkanir og auknar lífeyrisskuldbindingar orsaki lakari rekstrarniðurstöðu A-hluta borgarsjóðs fyrir árið 2014 en gert var ráð fyrir. Þá hefur fjölgun starfsfólks borgarinnar ekki haft áhrif á þá niðurstöðu.

„Eins og öll önnur sveitarfélög sömdum við um launahækkun við kennara í fyrra og aukin útgjöld stafa af samningum á vinnumarkaði,“ sagði Dagur. „Við munum auðvitað hagræða eitthvað á móti til að láta enda ná saman, við höfum ekkert leynt því.“

Í skýrslu fjármálaskrifstofunnar kemur fram að A-hluti borgarsjóðs var rekinn með 2,8 milljarða króna halla en gert var ráð fyrir að afkoman yrði jákvæð um 488 milljónir króna. Þetta þýðir að afkoma A-hluta er lakari um 3,3 milljarða en gert var ráð fyrir.

Þá er rekstrarniðurstaða Aðalsjóðs neikvæð um 7,1 milljarð króna en gert var ráð fyrir að hún yrði neikvæð um 5,1 milljarð króna sem er 1,9 milljörðum króna lakari niðurstaða en gert var ráð fyrir. Til samanburðar var afkoma A-hluta jákvæð um þrjá milljarða árið 2013 og afkoma Aðalsjóðs jákvæð um 64 milljónir sama ár.

„Ég lýsti yfir áhyggjum af þessu fyrir okkar hönd,“ sagði Halldór Halldórsson, oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, um rekstrarniðurstöðu A-hluta borgarsjóðs og Aðalsjóðs.

„Þetta er rosalega mikil aukning, um 10 milljarðar á milli ára.“

Halldór segir að nauðsynlegt sé að bregðast við þessum hallarekstri.

„Í ræðu minni í borgarstjórn í fyrradag [þriðjudag] sagði ég að planið í kringum Orkuveituna hefði gengið vel og það er fagnaðarefni, en nú er tími til kominn til að gera nýtt plan. Plan um A-hluta borgarsjóðs. Það þarf að stokka hlutina upp. Það gengur ekki að skatttekjur borgarinnar dugi ekki fyrir rekstri hennar,“ sagði hann.

Heildarafkoma A- og B-hluta Reykjavíkur stendur þó ágætlega en rekstrarniðurstaðan var 11 milljarðar sem er nokkuð meira en væntingarnar sem voru 8,1 milljarður króna.

Í greinargerð fjármálskrifstofu kemur fram að heildarsamstæða Reykjavíkur standi sterkt, sér í lagi vegna afkomu Orkuveitu Reykjavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×