Tekjurnar duga ekki til að reka borgina stefán rafn sigurbjörnsson skrifar 30. apríl 2015 09:00 Borgarstjóri segir heildarniðurstöðu um rekstur ársins 2014 jákvæða. Heildarsamstæðan skilaði 11 milljarða króna hagnaði. Oddviti Sjálfstæðisflokksins telur málið alvarlegt og segir skatttekjur borgarinnar verða að duga fyrir rekstri hennar. vísir/stefán/daníel „
Heildarniðurstaðan er náttúrulega jákvæð um 11 milljarða,“ sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri um rekstrarniðurstöðu Reykjavíkur fyrir árið 2014. „Þar vegur árangur Orkuveitunnar auðvitað þyngst. En kjarasamningar hafa tekið í reksturinn og við munum standa þá vakt á næstunni um hvernig verði hægt að fjármagna það,“ segir hann. Í skýrslu fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar kemur fram að launahækkanir og auknar lífeyrisskuldbindingar orsaki lakari rekstrarniðurstöðu A-hluta borgarsjóðs fyrir árið 2014 en gert var ráð fyrir. Þá hefur fjölgun starfsfólks borgarinnar ekki haft áhrif á þá niðurstöðu. „Eins og öll önnur sveitarfélög sömdum við um launahækkun við kennara í fyrra og aukin útgjöld stafa af samningum á vinnumarkaði,“ sagði Dagur. „Við munum auðvitað hagræða eitthvað á móti til að láta enda ná saman, við höfum ekkert leynt því.“Í skýrslu fjármálaskrifstofunnar kemur fram að A-hluti borgarsjóðs var rekinn með 2,8 milljarða króna halla en gert var ráð fyrir að afkoman yrði jákvæð um 488 milljónir króna. Þetta þýðir að afkoma A-hluta er lakari um 3,3 milljarða en gert var ráð fyrir. Þá er rekstrarniðurstaða Aðalsjóðs neikvæð um 7,1 milljarð króna en gert var ráð fyrir að hún yrði neikvæð um 5,1 milljarð króna sem er 1,9 milljörðum króna lakari niðurstaða en gert var ráð fyrir. Til samanburðar var afkoma A-hluta jákvæð um þrjá milljarða árið 2013 og afkoma Aðalsjóðs jákvæð um 64 milljónir sama ár. „Ég lýsti yfir áhyggjum af þessu fyrir okkar hönd,“ sagði Halldór Halldórsson, oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, um rekstrarniðurstöðu A-hluta borgarsjóðs og Aðalsjóðs. „Þetta er rosalega mikil aukning, um 10 milljarðar á milli ára.“ Halldór segir að nauðsynlegt sé að bregðast við þessum hallarekstri. „Í ræðu minni í borgarstjórn í fyrradag [þriðjudag] sagði ég að planið í kringum Orkuveituna hefði gengið vel og það er fagnaðarefni, en nú er tími til kominn til að gera nýtt plan. Plan um A-hluta borgarsjóðs. Það þarf að stokka hlutina upp. Það gengur ekki að skatttekjur borgarinnar dugi ekki fyrir rekstri hennar,“ sagði hann. Heildarafkoma A- og B-hluta Reykjavíkur stendur þó ágætlega en rekstrarniðurstaðan var 11 milljarðar sem er nokkuð meira en væntingarnar sem voru 8,1 milljarður króna. Í greinargerð fjármálskrifstofu kemur fram að heildarsamstæða Reykjavíkur standi sterkt, sér í lagi vegna afkomu Orkuveitu Reykjavíkur.
Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Fleiri fréttir Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Sjá meira