Raforkuöryggi Vestfjarða verið stórbætt svavar hávarðsson skrifar 29. apríl 2015 07:00 Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra vígði stöðina sem getur framleitt 11 megavött, eða sem samsvarar allri orkunotkun norðanverðra Vestfjarða. mynd/svavar hávarðsson
Raforkuöryggi á Vestfjörðum hefur stóraukist með nýrri varaaflstöð í Bolungarvík. Stöðin var tekin formlega í notkun í gær og er það stór áfangi í átaki Landsnets til að efla afhendingaröryggi raforku í fjórðungnum. Afkastageta stöðvarinnar samsvarar orkunotkun allra norðanverðra Vestfjarða, en uppsett afl hennar verður um 10,8 MW frá sex dísilvélum. Sérstaða hennar, raunar á heimsvísu, er að hér er sett upp varaafl fyrir heilan landshluta en til þessa hafa varaaflstöðvar hér á landi eingöngu verið tengdar einum notanda eða einu bæjarfélagi.Kristján HaraldssonLandsnet hefur lengi leitað leiða til að auka afhendingaröryggi raforku á Vestfjörðum. Forsendan fyrir því að úrbætur auki rekstraröryggi á Vestfjörðum er hins vegar svonefnt snjallnet – tæknibúnaður sem Landsnet hefur sett upp víða í Vestfjarðakerfinu og tengdur er saman í öflugu fjarskiptakerfi. Fyrir tíma snjallnetsins var viðbragðstími vart undir hálfri klukkustund á norðanverðum Vestfjörðum, s.s. á Ísafirði og í Bolungarvík, en eftirleiðis munu almennir notendur á svæðinu verða komnir með rafmagn að nýju innan tveggja mínútna. Þórður Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Landsnets, sagði við opnunarathöfn í Bolungarvík í gær að nú væri fram undan hjá Landsneti að skoða hvernig best mætti styrkja afhendingaröryggi raforku á sunnanverðu svæðinu og tengingu norður- og suðursvæðisins. Að mati Landsnets er aukin orkuframleiðsla innan fjórðungsins hins vegar forsenda þess að hægt verði að tryggja ásættanlegt raforkuöryggi Vestfjarða til framtíðar. Kristján Haraldsson, orkubússtjóri hjá Orkubúi Vestfjarða, segir ljóst að varaaflstöðvarnar á Ísafirði og í Bolungarvík og ný tækni sem felst í snjallnetinu sé risastórt skref fram á við. „Það má segja að langvarandi rafmagnsleysi á norðanverðum Vestfjörðum heyri nú sögunni til.“ Verkið tók rúm tvö ár og kostaði um 1,5 milljarða króna en alls hefur Landsnet fjárfest fyrir rúma þrjá milljarða í bættu orkuöryggi vestra á liðnum árum.Nýlundan byggist á öflugum fjarskiptumLandsnet hefur lengi leitað leiða til að auka afhendingaröryggi raforku á Vestfjörðum. Fyrr hafði nýtt tengivirki á Ísafirði risið, rafmagnslínur í svæðiskerfinu vestra verið endurnýjaðar og endurbættar og jarðstrengur lagður milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur.Forsendan fyrir því að þessar úrbætur auki rekstraröryggi á Vestfjörðum er hins vegar svonefnt snjallnet.Verði truflun, sem hefur það í för með sér að orkuvinnsla innan svæðisins nægir ekki til að sinna aflþörfinni, þá leysir snjallnetsbúnaðurinn út allt rjúfanlegt álag á svæðinu og ræsir um leið varavélar aflstöðvarinnar í Bolungarvík og lágmarkar þannig umfang truflunarinnar hjá íbúum Vestfjarða og öðrum raforkunotendum.
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Fleiri fréttir Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Sjá meira