Öll mín lög eru persónuleg fyrir mig Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 25. apríl 2015 09:00 Líkt og vaninn er hjá Björk er mikið lagt í alla umgjörð í kringum plötuna.
Platan Vulnicura með Björk Guðmundsdóttur kom út þann 20. janúar síðastliðinn. Vulnicura er áttunda sólóplata Bjarkar sem gefin er út af One Little Indian. Plötunni lýsti Björk á heimasíðu sinni Bjork.com sem ástarsorgarplötu og sagði að það kæmi sér á óvart hversu nákvæm skráning hún væri á ferlinu. Þrjú lög fyrir sambandsslit og þrjú eftir en sambandið sem um ræðir var langtíma ástarsamband Bjarkar við listamanninn Matthew Barney. En mætti þá segja að Vulnicura væri ein af hennar persónulegustu plötum til þessa? „Já, ef til vill, en mér finnst lög eins og til dæmis Dark Matter með engum texta af Biophilia mjög persónulegt. Það var samið um dauða ömmu minnar sem var mér mjög kær. Hún var frekar svona introvert þannig að það á vel við,“ segir Björk og bætir við að öll hennar lög séu frekar persónuleg fyrir sig. Í kjölfar útgáfu Vulnicura fór Björk í röð viðtala á miðlum eins og til dæmis Pitchfork. Þar talaði hún um ferlið á bak við sköpun plötunnar en passaði sig jafnframt á að minnast ekki á persónulega hluti sem lutu að skilnaðnum. „En ég talaði því meira um heilun mína og einbeitti mér bara að ferlinu mínu,“ segir hún. „Mér finnst við allar plötur sem ég hef gert að ég hafi farið í gegnum ferli. Til dæmis Homogenic, þá var ég á Spáni að reyna að defínera hvað er íslensk tónlist en á sama tíma glóbal,“ segir hún en platan Homogenic kom út árið 1997 og fékk prýðisgóðar viðtökur. Rolling Stone gaf henni meðal annars fjórar stjörnur af fimm. Síðasta plata Bjarkar á undan Vulnicura, Biophilia, kom út árið 2011 og segir Björk umfjöllunarefni hennar persónulegt. „Biophilia var kannski um hvar við stöndum í alheiminum og í samhenginu tækni og náttúra, sem mér finnst mjög persónulegt.“ Björk segir texta sína oft og tíðum fjalla á einhvern máta um ástina, enda hefur sú tilfinning verið mörgum listamönnum yrkisefni í gegnum tíðina. „Textarnir mínir eru nú svona oftast um ást,“ segir hún og bætir við: „Hvort sem það er verið að tala um kristalla eða sjálfstæðisbaráttu.“ Björk hefur í mars og apríl haldið sex tónleika í New York. Tónleikahald heldur áfram í sumar og kemur hún tvisvar sinnum fram á Iceland Airwaves-hátíðinni. Aðdáendur Vulnicura og Bjarkar mega eiga von á að platan verði flutt í heild. „Mig langar rosalega að spila hana með sömu hljóðfæraleikurunum og eru á plötunni, Unu Sveinbjarnar og félögum, svo við munum líklegast spila plötuna frá A til Ö.“ Björk segir tónleikana á Íslandi sér mikilvæga. „Alltaf langmikilvægustu tónleikarnir fyrir mig, þess vegna geri ég þá oftast seinna á túrnum svo allt sé orðið slípað,“ segir hún og biður að lokum fyrir kveðju heim til Íslands. Hér má sjá tónlistarmyndband Bjarkar við lagið Lionsong
Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Fleiri fréttir Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Sjá meira